Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, maí 2009

Rauðvínslegin skammarræða...

Kæra ríksistjórn og aðrir bankamenn (rassálfar) .... 

 Verði ykkur að góðu.  Ég tók ekki þá í þessi svínaríi þessara viskí legnu víkinga arðræningja kapítalista. hmm spurning um að fara úr landi?  Hvað eru margir sem hugsi það sama.  Annar hver maður og önnur hver kona á íslandi.  Ekki ætla ég allavega að láta mín börn borga þessa súpu. Þið þi getið ýmindað ykkur rest....


Nýtt Tjald og fiska fjall

Fór í gærkveldi í Þingvalla paradís.  Veiddi 8 stk. Hélt eftir 4 sem að er hægt að grilla.  Frystikistan er byrjuð af fyllast strax. Þetta var bara gaman.  Hulda mín er hinsvegar kannski ekki ánægð með uppátækið þar sem að fiskur fer að flæða upp úr kistunni.  Nóg um það mál.

Við hulda keyptum okkur nýtt tjald í gær fyrir sumarið.  Það er frekar stórt eða 6m x 4m.  Bara fortjaldið er 2,8m x 4m.  Allavega erum við með tjald sem að er stærra en fellihýsin (skuldahalarnir).  Það kemst fyrir í geymslunni heima og þarf ekki að fara í skoðun hjá ríkinu á hverju ári og kostar bara brot af því að hafa fellihýsi eða tjaldvagn tala nú ekki um auka eldsneytis eyðsluna með því að draga með sér herleg heitin. Kreppu kostur fyrir sumarið.  Getum svo búið í tjaldinu þegar við flýjum land Smile

Tjaldið er með svefnpláss fyrir 7 í tveim herberjum sem að eru aftast í tjaldinu.

Hér er mynd af tjaldinu fyrir neðan.

Tjaldið 2009


Skrepp í Þingvallasveit

Skrapp í gær í Þingvallasveit.  Hef haft það fyrir sið að byrja ekki að veiða á þingvöllum fyrr en um 20maí.  Árangurinn lét ekki á sér standa í þessa 2 tíma sem að ég stoppaði á staðnum mínum góða.  Fékk 2 bleikjur sem að voru feitar og vænar 2 pund og 3 pund.  Var líka að prufa nýju vöðlurnar Goretex mínar frá Slate og Orvis vöðluskó.  Virkar bara vel. 

Þingvallavatn er oft lengi að taka við sér þar sem að landið og vatnið stendur frekar hátt yfir sjávarmáli er c.a. mánuði á eftir miðað við gróðurfar og veiði í strandvötnum.  Er farinn að þekkja staðinn ansi vel þar sem að ég hef verið að veiða þarna í nokkur ár með flugu.  Gott að miða við 20.maí þá kemur bleikjan að landi í kringum þann tíma yfirleitt. 

 Erum byrjuð að plana sumar fríið.  Það verður ekki farið til útlanda eins og undanfarin tvö ár heldur að flakka innanlands.  Búinn að gera samning við huldu um að ég fæ að taka stöngina með hihi.

Búinn að vera í löngu helgar fríi þar sem að leikskóli Ástrósar er í fríi frá miðvikudegi til þriðjudags.  Leikskólakennararnir fóru í námsferð til Canada.

Fyrstu þingvallableikjurnar 2009 - Mynd 1Fyrstu þingvallableikjurnar 2009 - Mynd 2


Ég

Viðar Þór Marísson
Viðar Þór Marísson

 

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband