Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Vikan 21-28 Júní

Vikan hefur innihaldið hlátur, grátur, gleði og vonbrigði og brunasár,allt í bland.  Ástrós fékk gat á hausinn síðast liðinn sunnudag eftir að hafa fallið aftur fyrir sig í Kojunni sinni og niður á gólf.  Ferð á slysó og allt sem því fylgir.  Um helgina ætluðum við saman í útilegu en Hulda var búinn að vera með flensu.  Hún var að skána að við héldum, en hún var með slæman hósta og fór því til læknis á föstudeginum um kl 4.  Ég og Ástrós biðum út í bíl með allt útilegudótið, bíllinn full lestaður og við öll komin í ferða skap.  Læknirinn komast að því að Hulda var með lúgnabólgu og væri ekki að fara neitt. Hvorki í útilegu né vinnu.  Við fórum því heim aftur við lítinn fögnuð þeirrar litlu sem að var að skilja orðin útilegu þyrst. Á laugardeginum fórum ég og Ástrós saman á flúðir þar sem að fjölskildu dagur Icelandair var haldin með pompi og prakt.  Þetta var hreint sagt himneskur dagur.  Varla ský á himni og lítill sem enginn vindur.  Fullt af krökkum til a leika við.  Við eyddum þarna góðum degi.  Við fórum saman í ratleik, hún fór í hoppu kastala, borðuðum saman kvöldmat úti með öllum hinum og borðuðum ís.  Fullkominn dagur fyrir krakka og fullorðna.  Lífið og veðrið var indælt þennan dag.  Ástrós hitti Skoppu og Skrítlu sem að eru stundum í stundinni Okkar á RUV og fékk að taka mynd af sér með skrýtlu.  Í dag byrjaði dagurinn snemma eða um 5 leitið þegar ég fór á fætur og fór sem leið lyggur á Þingvöll.   Þar eyddi ég yndislegum morgni í blíðskaparveðri með sjálfum mér og veiðistönginni minni.  Það er hreint himneskt hvert skipti sem að ég kem til veiða á þingvöllum enda hef mikið dálæti á þeim stað.  Allar áhyggjur hverfa þegar vatnið nálgast.  Náttúran og umhverfi staðarins veitir innri ró og frið. Ég og Ástrós fórum svo í könnunarleiðangur í kringum vífilstaði og Vífilstaðavatn og tíndum blóm fyrir mömmu sem að var veik heima.  Helgin hefur sumsé unnið leiðindi og vonbrigði vikunnar.  Verð reindar að viðurkenna að ég er frekar steiktur og brunninn í framan og á handleggjunum.  Borgar sig að nota sólar vörn kannski.  Ástrós hló mikið þegar ég sagði að ég væri eins og steikt beikon í framan. 

IMG 20090628 0890IMG 20090628 0882,

IMG 20090628 0870IMG 20090627 0859IMG 20090627 0846IMG 20090627 0847IMG 20090627 0838IMG 20090627 0788IMG 20090627 0777 copyIMG 20090627 0779IMG 20090627 0757


Hæ hó og jíbbí jei .... tralla ralla ra


Það er búið að vera gaman í dag hjá okkur.  Dagurinn byrjaði kl 11 í leiktækjum og bátsferð með pabba.  Fórum svo heim og grilluðum pulsur fyrir Ástrós.  Eftir það var lagt aftur í hann og horft á skemmtiatriði á Vífilstaðatúni.  Eins og Ástrós segir sjálf "ég ætla bara að dreyma það sem að gerðist í dag það var svo skemmtilegt".

Fannst við reyndar vera rænd þegar ég benti ástrós á að velja sér blöðru úr einum sölubásnum.  meðal stór Hello Kitty blaðra varð fyrir valinu að sjálfsögðu.  "Hvað kostar hún" sagði ég, "2500 kr" segir sölu daman.  Ég spurði hana hvort hún væri að grínast.  Hún sagðist ekki grínast með svona hluti.  Alla vega varð litla daman ánægð þrátt fyrir blöðru okur. 

Dagur biðraðana er búinn.  En það má með sanni segja að 17.júní sé dagur barnanna.

17Júni 2009 - Mynd117Júni 2009 - Mynd217Júni 2009 - Mynd317Júni 2009 - Mynd417Júni 2009 - Mynd5 17Júni 2009 - Mynd6

 


Júní og það er komið sumar

Skrapp í morgun á Þingvelli eins og ég geri stundum.  Mætti snemma á svæðið eða um 5 leitið. Fljótlega fékk ég eina væna bleikju.  Þegar klukkan fór að slá í átta ákvað ég að breyta um flugu og setti Watson Fancy fluguna (mína útgáfu) undir.  Ekki leið að löngu þar til að ég fann eina töku djúpt niðri.  Ég hélt að þetta væri eins og vanalega rúmlega 1-2 punda bleikja. En nei upp reis hryggur úr dýrsins úr vatninu þetta leit út eins og um lagarfljóts orminn væri að ræða.  Mér kross brá við þetta.  Línan rauk út í vatn og upphófst mikið reiptog.  Eftir allnokkra stund áttað ég mig á því að um væri að ræða frekar stóran fisk.  Ég sá glitta í bleikan magann og sá boltann rjúka í allar áttir til að reyna að losa sig.   Fiskurinn tók all nokkrar kröftugar rokur og gerði fjölmargar tilraunir til að spretta í burtu í slíta úr sér, en þökk sé réttum slaka á línunni gerðist það ekki.  náði ég loksins að þreyta dýrið.  Höfðinginn sá bleiki komst að lokum í háfinn eftir rúmar 10 mínútna bardaga.  Ég stóð eftir með hjartslátt og adrennalín flæði í hámarki. Ég hef ekki náð stærri bleikju í þingvallavatni hún var 53 cm og tæp 2 kíló.

Erum búin að grilla þó nokkuð um helgina og hafa það gott.  Það eina sem að skyggði á helgargleðina var að Ástrós litla er búin að vera með flensu og litla sílið mitt hefur verið með ljótan hósta síðan á fimmtudag.  Þetta er reyndar í rénun og vonum það besta.

Það var hálf kaldhæðnislegt hér áðan þegar ég bar búinn að grilla að þá byrjaði þátturinn "The Biggest Looser"  þannig ég settist í sófann með fullan maga af grillmat og stóran eftirrétt í hendinni. Kannski svipar þetta til að fara fullur á AA fund hihi.

 


Ég

Viðar Þór Marísson
Viðar Þór Marísson

 

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband