2.5.2008 | 19:13
Flísar í litlum krílum og fiskur dagisins
Já dagurinn eftir vinnu hefur ekki gengið áfallalaust fyrir sig hjá litlunni minni. Hún fór út að tína blóm handa pabba og kom hlaupandi inn há grátandi þar sem að hún hafði fengið flísar úr blómi sem að hér er í garðinum. Eftir miklar og strangar samningaviðræður tókst mér að taka flísarnar úr hendinni. Það leit út fyrir að samningar myndu ekki nást en eftir mikinn grát og vangaveltur lítillar stelpu var fallist á að fá plástur þ.e.a.s. prisnessu plástur og smá nammi. N.b. bara að fá að skoða hendina kostaði 15 mínútna samninga viðræður og tók þetta all nokkra stund eftir það.
Elduðum annars fantagóðan fisk við feðginin sem töfruðum úr því sem að til var á þessum bæ og útkoman úr þessari tilraunaeldamennsku kom tja bara á óvart.
Fiskur í eldföstumóti með fetaosti og tómötum ala Viddi.
2 dl Hrísgrjón
2 Ýsuflök
Nokkrir sveppir
2 tómatar
½ Krukka MS fetaostur
Rifinn ostur
Sósa á fiskAromat ( eftir smekk)
1 dl AB Mjólk
1 mat sk Létt Majones
Eftirlæti hafmeyjunnar (Pottagaldrar)
MCormick Italian sesoning ( eða sambærilegt)
Sjóðið hrísgrjónin og setjið í botninn á eldföstu móti. Skerið fisk flökin í hæfilega bita og setjið yfir hrísgrjóninn og saltið fiskinn. Dreifið sveppunum jafnt yfir. Setjið svo tómatsneiðar yfir. Dreifið svo sósunni yfir fiskinn og tómatana og sveppina. Að lokum dreifið fetaostinum yfir. Setjið svo rifinn ost eftir smekk. Setjið inn í heitan ofn og bakið við 200° í 20 mínútur.
Eldri færslur
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
Athugasemdir
þetta er svipað og ein uppskrift hjá mér -- mjög gott en gott að hafa grjónin sér --- svo er líka gott að setja fist í mót og salta og pipra, blanda svo saman 1/2 líter AB mjólk og ein krukka pestó af eigin vali hella þessu yfir fiskinn og setja í ofninn gott að setja saxaða steinselju yfir áður en þetta er borið fram ef maður á til steinselju--- þetta er vinsælt hjá öllum á okkar heimili og er nánast sleikt upp úr fatinu-- með þessu er gott að hafa hrísgrón og salat
Margrét M, 4.5.2008 kl. 14:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.