Já er búinn að vera mikið á ferðinni á vegum vinnunar. Kominn heim frá Prag aftur búinn að fara til Prag á fund tvisvar sinnum í þessum mánuði. Okkur var boðið far til Íslands á fundinum sem að við vorum á í Prag. Þannig að við fengum einkavél (B737-800) frá ákveðnu fyrirtæki þar í bæ. Átti að koma heim í gegnum Kaupmannahöfn þannig að þetta var alveg kærkomið að komast aftur heim. Dóttir mín stökk líka í fangið á pabba sínum og gaf honum koss á kinnina og tilkynnti mér að hún hafi saknað mín mikið. Ókosturinn við að koma heim á svona vél var að það var enginn fríhöfn opin... Þar sem að ég hafði lofað að koma heim með eitthvað handa prímadonnunni minni litlu. Enn ég lofaði að bæta henni þetta upp síðar.
Fékk síðan að vita það í dag að það er verið að senda mig til Bangkok og Phuket í Tælandi og Kuala Lumpur í Malasíu í næstu viku. Ég er að fara í flugvallaúttekt þar sem að við erum bráðlega að fara að flúga fyrir flugfélag sem að er með höfuðstöðvar í Prag. Þetta er frekar spennandi þar sem að ég hef ekki komið til Asíu áður .
Löng vika framundan reikna með að eyða 17 klukkustundum í flugvél á miðvikudag á leið til Bangkok.
Við ákváðum í vinnunni um daginn að vera með leynivinaleik á skrifstofunni. Það var stungið upp á þessu til þess að létta aðeins á fólki. Leikurinn gengur út á að þú átt að gleðja vinnufélaga þinn sem að veit ekki hver þú ert. Gaf mínum Leynivini pakka í morgun sem að var bara gaman. Ég fékk svo frá mínum leynivin smá pakka sem að gladdi mig mikið notaði pakkann eftir að ég kom heim rann ljúft niður (fékk hvítvín) enda er ég sælkeri mikill. Þetta virkar vel á alla á skrifstofunni því að allir eru byrjaðir að brosa sem að er gott því að margir voru komnir með smá skeifu útaf ástandinu og þetta snéri skeifunni í bros. Ekki veitir af á þessum síðustu og verstu tímum.
Ég veit ekki með ykkur en ég læt kreppuna ekki draga mig niður. Þvert í móti fær það mann til að sjá hvað er dýrmætt í lífinu. Númer 1 fjölskyldan þín. Annað kemur og fer, peningar og allt annað. Fjölskylduna áttu skuldlaust.
Það sem að er dýrmætasta í þessum heimi er:
1. Börnin þín og maki þinn
2. Ást,
3. Vinátta
4. Fríska íslenska loftið sem að þú andar að þér
5. Íslenska rokið ( það feykir fýlunni frá Íslandi örugglega fljótt)
6. Að reyna að vera betri persóna í dag en í gær.
Það besta víð ofangreinda upptalningu er að þetta kostar ekki neitt. Það er eitt sem að ég hef haft fyrir reglu bæði í vinnu og í einkalífinu. Vertu góður við fólkið sem að þú hittir þegar þú klífur lífsins brekku í leik og starfi því að þegar þú rennur niður brekkuna hittir þú þetta fólk kannski aftur.
Eldri færslur
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- September 2006
- Ágúst 2006
Athugasemdir
jamm rétt kostar enga peninga að elska og virða ,,
Margrét M, 18.10.2008 kl. 12:37
Vel mælt Viðar minn, mæltu manna heilastur!
Hófí (IP-tala skráð) 22.10.2008 kl. 16:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.