Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009
24.7.2009 | 21:07
Fossatún síðustu helgi og ýmsar fréttir
Fórum í Fossatún Síðustu helgi. Komum heim á mánudaginn. Erum búin að taka því rólega frameftir vikunni. Ástrós fékk göt í eyrun í dag. Finnst hún vera orðin ansi stór þegar það er komið. Hún hefur verið að suða um þetta og við létum undan í dag. Annars vorum við fegin að hún valdi þennan dag því að hún var vel stemmd fyrir þetta. Það var skotið í bæði eyrun í einu. Smá grátur á eftir en fljótlega var það búið. Fórum annars á ylströndina í Nauthólsvík að spóka okkur í gær. Mikið var um manninn á ströndinni. Að sjálfsögðu var ís borðaður eftir að við komum af ströndinni. Nú eru vestfirðirnir teknir með trompi á sunnudag. Gaman að sjá fegurðina þar og munda myndavélina. Við munum svo enda á Miðhrauni II á Snæfellsnesi og eyða þar verslunarmannahelginni í rólegheitum í sveitasælunni. Hér eru annars nokkrar myndir frá ferð okkar síðustu helgi á Fossatún í borgarfyrði. Komst í smá veiði þar. Við fórum í langavatn og aðeins í Blundvatni. Ekki mikið um stóra fiska en gaman samt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.7.2009 | 10:26
Komið að annari útilegu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.7.2009 | 15:16
Góð hugmynd frá Íslandi
Namm... uppskrift fyrir vandláta.
Lax eða silungur með mango chutney
1 kg lax eða bleikja, beinhreinsuð með roði
1 krukka mango chutney
svartur pipar
salt
pekan hnetur
sesamfræ
Laxinn settur í eldfast mót, mangó chutney sett yfir. Hnetum og fræi stráð yfir.
Eldað í 20 mínútur við 180°C
Salmon or Trout with mango chutney
2 1/2 pounds salmon fillets (or trout)
1 Jar of Mango Chutney
1/2 cup Crushed pecan nuts
1/4 cup Sesame seed
Salt and pepper
The fillets are cleaned and stripped of small bones. Lay the fillet into a oven pan. Spread the mango chutney over the fillets.Drizzle the sesame seed and pecan nuts over the fillets.
And finally cook for 20 minutes at 180°C in center of the oven.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2009 | 22:40
Þegar laufin sofa liggja spaðarnir andvaka (og hósta)
Já hóst og stuna, sniff og atsjú!!!!!! Já bara allur pakkinn. Er búinn að vera með hálsbólgu og kvef(kvebb) í nebba. Þetta er að lagast fyrir utan það að ég hósta eins og gamall Trabant sem að vill ekki starta (thu, thu, hóst). Var að prufa "Adobe Lightroom" sem að er forrit fyrir áhugafólk og lengra komna í ljósmyndun. Verð bara að segja að það kemur mér nokkuð á óvart þetta forrit. Hef allatíð verið meiri svona Photoshop kall, en þetta lofargóðu. Smellti nokkrum myndum af áðan af glasi með sítrónu. Gat ekki verið meira svona eitthvað út í loftið. Útkoman voru gráar myndir með líflausri sítrónusneið til að byrja með.
En eftir smá fikt var þetta meira bitastætt. frískt, svalt og seiðandi eins og þessar ættu kannski að segja.
frískt..........
.....Svalt.................................................... og seiðandi.
Held að ég fikti aðeins meira með þetta forrit þegar ég er að vinna myndirnar mínar.
Sumarfríið er handan við hornið. Það er í mörg horn að líta í fríinu eins og alltaf.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- September 2006
- Ágúst 2006