18.11.2008 | 23:29
Sparnaðar ráð Vidda
Keðjureykingar. Þetta kallar maður að nýta reykinn. Reyki ekki sjálfur þannig að þetta gæti kannski gagnast öðrum sem reykja. Gæti sparað nokkra pakka.
Sjáðu um þínar eiginn tannlækningar. Ódýrt þ.e.a.s ef að þú átt borvél og hefur aðgang að rafmagni og spegli. Mæli samt ekki með að fólk brosi mikið eftir á. Það gæti fælt viðkomandi.
Láttu hundinn sjá um að taka þátt í heimilistörfum sem t.d. eins og uppvaskið. Bara ekki bjóða mér í heimsókn ef að þú ákveður það.
Síðast en ekki síst.... taka upp heilsusamlegt líferni ásamt því að hafa gaman af því þ.e.a.s. hið nýja rússneska VODKA jóga sem að er orðið mjög vinslælt á íslandi. Kaupa bara eina vodka flösku ( ódýrara heldur en að fara í jógatíma) og fylgja leiðbeiningum þegar innihaldið hefur verið klárað. P.s Þetta getur reynt á bakið.
17.11.2008 | 20:38
Mikilvægar spurningar
Hef verið að taka við mjög mikilvægum spurningum undanfarið frá dóttir minni henni Ástrós 4 ára.
Pabbi, afhverju erum við ekki með eitt auga eins og risar og afhverju þurfum við tvö?
Pabbi ,úr hverju eru englar gerðir eiginlega?
Pabbi, hvað eru töfrar?
Pabbi, afhverju geta álfarnir í bókinni flogið en ekki ég?
Pabbi, afhverju eru svona margir jólasveinarnir en ekki jólastelpur stelpur?
Það er gaman að reyna að svar þessu eftir bestu getu. Stundum getur það verið erfitt en samt gaman. Það er mikið verið að spyrja allt í einu þ.e.a.s. meira en vanalega. Þetta eru allt svona spurningar sem að svör eru ekki til í inum grænum. Svarið hjá mér byrjar oftar en ekki á smá þögn og "sko hmm"..... og eftir smá umhugsun kemur þetta.
12.11.2008 | 22:38
What are you sinking about?
Ofan greindir sjóarar eru í svipaðri stöðu og við íslendingarnir þ.e.a.s. ekki í góðum málum. Hvert ættum við að fara eina landið sem að tekur íslendingum opnum örmum er sennilega þeir sem að við höfum litið niður á pólverjar vilja allt fyrir okkur gera þegar vinirnir hafa brugðist okkur. Bretar trampa á puttunum á okkur á bjarg brúninni, danir bíða fyrir neðan með opnar líkkistur og hollendingar sjá um að grafa okkur ókeypis með bros á vör og þetta kölluðum við vini okkar. Fussum svei eins og karíus og baktur myndu segja.
Kannski ætti maður að slá öllu upp í kæruleysi ef að allt fer á versta veg flytja til Frakklands og fara að rækta vínvið. Ég gæti kallað vínið "Rêves nordiques" eða norður draumar. Hver veit það eina sem að þarf er góð hugmynd sem að virkar og la passion fyrir hlutunum. Margir eru að spá og spögulera hvað á að gera í stöðunni sumir fara og aðrir eru hér á klakanum. Ég skal bara hjálpa þeim að pakka sem vilja fara..... Ekki er ég að fara (Bank bank,Sjö, Níu, þrettán). Tek framm að þetta bank er ekki tengt íslenskum banka á neinn hátt.
Þá er bara að Brosa og skella á sig rafsuðuhjálminum því að ég er svo bjartsýnn. Ekki hægt að gera annað en að halda gleðileg jól á næstunni. Skreytum meira og skellum upp meiri ljósum það er ég allavega búinn að ákveða. Fólk mun fá sykur húðað jóla sjokk þegar það kemur í þennan bæ þegar nær dregur jólum . Hef verið þekktur fyrir að vera jóla kall... ætla núna að vera súper jóla kall bara til sýna kreppunni hnefanna og gleðja í leiðinni litluna mína.
11.11.2008 | 21:02
Kvöld sagan
Það sem að fyllir mig orku þessa dagana er lítil pabba stelpa sem að heitir Ástrós Erla Viðarsdóttir. Það er mikið að gera á skrifstofunni þessa dagana. Þegar heim er komið er gott að gleima annasömum degi. Það tók á móti mér brosandi lítil prinsessa þegar ég labbaði inn um hurðina. Við það eitt hvarf þreitan eins og dögg fyrir sólu. Ég eldaði silung í matinn pönnusteiktan með kartöflum og sallati. Ég lagði flökin stoltur í pönnuna því að þetta var enginn venjulegur silungur heldur silungur sem að ég veiddi sjálfur. Eftir matinn kom svo heimsins besti samverutími okkar feðgina. Það er kvöld sagan. Ástrós getur ekki sofnað nema að það sé lesið eitthvað fyrir svefninn. Við förum reglulega saman á bókasafnið og veljum okkur einhverjar skemmtilegar bækur. Svo sitjum við saman í herberginu hennar og lesum saman bók - stundum tvær þegar beiðni kemur um slíkt. Þá er sú bón yfirleitt tekinn til greina.
Jæja einn eða tveir brandari í tilefni dagsins:
9.11.2008 | 23:18
Kreppu heilsa
Við höfum um tvennt að velja í stöðunni í dag ,annað hvort :
Ég valdi seinni kostinn "B" í þessu kreppu tali. Super happy. Því að annað hvort verður fólk sturlað af að láta trekkja sig upp í gegnum fjölmiðla, banka og annan óþjóða lýð sem að hefur komið því þannig fyrir að þér sortnar fyrir augum þegar þú slysast til að hlusta eða horfa á netmiðla, hlusta á útvarp eða horfa á sjónvarp. Það gefur bara auga leið að maður myndi sökkva í súran grænan skíta mykju haug og að lokum drukkna í eigin vesæld og skömm útaf því að síndarmennskan er brostin hjá þeim sem skrifuðu bara innistæðu lausa tékka.
Já í þessum aðstæðum er best að stinga hausnum í sandinn allavega þar til eftir jól um ástand lands og þjóðar. Það er ekkert víst sem að ég get gert í því að ég fæddist íslendingur og að einhverjir asnar út í bæ arðrændu hálfa efrópu meðan að við sváfum. Þeir sitja víst heima og gráta sig í svefn á hverju kvöldi. En ekki við hin. Vildi ekki vera í þeirra stöðu núna.
Dóttir mín bíður samt sem áður eftir jólunum þrátt fyrir þetta ástand á Íslandi. Og já við höfum það bara ágætt. Mitt helsta takmark fyrir þessi jól sem að eru frammundan er að gefa litla engilum mínum henni Ástrós Erlu góð jól og áramót. Mér sýnist að það muni takast all þokkalega þar sem að við stöndum vel að vígi eins og staðan er í dag. Þannig að ég er glaður og ætla mér að vera eins og Svampur Sveinsson ofur súper jákvæður með framhaldið.
Það að fyndna við þetta allt saman er að ég er yfirleitt mjög heppinn þegar aðrir eru óheppnir. T.d. tel ég föstudaginn 13da sem að margir óttast minn happa dag. Hef alltaf horft á það þannig. Og viti menn eitthvað jákvætt gerist með það. Ekki útaf því að ég sé eitthvað heppinn þann dag heldur vegna þess að ég trúi því að eitthvað jákvætt gerist. Er það ekki málið.
Margir sitja eflaust með sárt ennið eftir fjármálabrunan. Þá hefði tildæmis verið gott fyrir þann sama að vera góður við þann sem að þú varst að vinna með fyrir neðan þig í virðingar stiganum. Hvað gerir þú þá? Ekki öfundsvert að hafa sett ríting í bakið á einhverjum því að þú gætir þurft að biðja þann sama um greiða þegar öll sund eru lokuð. Því hef ég haft það að leiðarljósi að virða alla sem að ég hitti, starfta með eða kynnist á minni lífsleið. Því að þegar öllu er á botnin hvolft skiptir viðmót þitt til annara mestu. Munið þið bara þú komst inn í þennan heim nakinn með ekkert. Það segir þér hvað? Jú er það ekki. Peningar eru ekki allt. Hinn sanni auður lyggur í hjartanu.
Til dæmis vaknaði ég við það að dóttir mín 4 ára skreið upp í rúm til okkar í morgun og gaf okkur knús. Þetta knús var mér meira virði heldur en gullforði jarðar.
Auður er afstætt hugtak. Á íslandi varð auður úr engu t.d. H-landsbankinn og Kappa Fling Fling (KB Bank) auk annars sorps.
Metum það sem að við höfum - hvort annað.
7.11.2008 | 23:01
Guð blessi Ameríku...
... Hann vildi ekki blessa ísland vegna þess að vegna þess að skrattinn sjálfur tók ísland upp í skuld. Svo er nú það.
Barack Hussein Obama II verður 44 forseti bandaríkjanna þann 21 janúar 2009. Loksins endar er búss-isminn á enda. Kannski breitist heimurinn til góðs. Síðast þegar demókrati var forseti Bandaríkjanna ( Bill Clinton ) náði meðal annars að koma á í USA að menntunn landsmanna væri forgangs atriði, tókst að minnka atvinnuleysi þar í landi og bæta efnahag og umhverfis stefnu USA. Bush tókst hinsvegar að koma á heimskreppu með húsnæðis lána fyrirkomulagi þar í land.
Vonandi tekst Obama hið óhugsandi að snúa efnahag USA uppávið og um leið styrkja efnahag heimsains því að um leið og það hryggti í stoðum þar vestra fór heimurinn að skálfa með.
Er annars búinn að eiga heima í vinnunni undanfarna daga. Við erum á fullu að undirbúa komu eftirlitsmanna frá IATA sem að verða með gæða útekt á Icelandair næstu daga. Allir búnir að leggja sig fram um sú útekt gangi vel fyrir sig og að allt fari á besta veg.
Siðast þegar ég skrifaði hér inn átti ég langt ferðalag fyrir höndum frá Kualalumpur í Malasíu. Það gekk bara vel. Manni svelgdist svolítið á þegar flugstjórinn tilkynnti að flugtíminn væri aðeins 12 tímar og 10 mínútur til Amsterdam. Það var svo sem allt í lagi þar sem að ég var á Business class og svaf mest allan tíman í vélinni. Var í sæti sem að ég gat breytt í rúm og haft það náðugt í þessu annar langa flugi. Þegar við svo komum til Amsterdam kl 04:00 að íslenskum tíma þurfti ég að bíða á flugvellinum í sjö tíma eftir að fá far heim með Icelandair.
Ég hugsaði mér gott til glóðarinnar þegar ég kom heim ætlaði að kaupa nammi fyrir jólin og vera hagsýnn. En viti menn það er ennþá dýrara í fríhöfninni heldur en hér niðurfrá í t.d. bónus þar sem að flest allt sælgjæti þar er með erlent fæðingar vottorð ( í fríhöfninni) og þar af leiðandi dýrt.
Hver hefði t.d. trúað því fyrir ári síðan að Kaffitár kaffi væri ódýrara heldur en Merrid kaffi. Það kemur sér reindar vel fyrir mig þar sem að ég elska gott kaffi og sælkerinn í mér elskar Kaffitárs kaffi blöndur. Fyrst að við erum að tala um kaffi þá er besta kaffi sem að ég hef smakkað frá Papúa nýju Gíneu. Við erum að fljúga fyrir Air Niugini sem að er fánaberi landsins. Þegar þeir komu í heimsókn til okkar gáfu þeir okkur kaffi pakka. Það kom svona "takk" með skripnum svip hjá einhverjum en þegar að kaffi pakkinn var opnaður skildum við: Þetta er heimsins besta kaffi.
Svo að ég haldi áfram að blaðra um þessa ferð mína var hún mjög spennandi yfir höfuð. Gaman að koma til Asíu ; Tælands; Malasíu og Vínarborgar. Allt staðir sem að ég hef ekki komið á áður.
Yfirleitt sé ég bara flugvelli en í þessari ferð þurftum við að fara inn í borgirnar og sinna erindum fyrir flugfélagið. Þetta var bara yfir höfuð gaman og lærdómsríkt.
Fannst reyndar eitt frekar fyndið kreppan er kölluð "Hamburger Crisis" í Asíu þar sem að hún á rætur að rekja til heimalands þessa fyrirbæris hammborgarans.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.10.2008 | 11:41
Er á leið til Kualalumpur frá Phuket Tælandi
Er búinn að vera að vinna í Tælandi síðan á miðvikudag. Það er búið að vera gaman að heimsækja þetta fallega land. Ég er búinn að vera á fundi með flugfélagi hér á bæ og að skoða hótel fyrir áhafnir bæði í Pattaya,Bangkok og Phuket. Nú erum við búnir að klára okkar task í Tælandi og næsta tekur við í Kulalalumpur í Malasíu. Það er rúmlega 3 tíma flug til Kulala frá Phuket þar sem að við erum núna. Er núna að bíða eftir flugi og þarf að drepa smá tíma. Tæland er mjög heillandi og skemmtilega fór í gær á mjög skemmtilegt resort sem að Marriot hótel eru með er eins og hreynlega að vera miðjum frumskógi með 5 stjörnu hótel líkara ævintýri en raunveru leika þar sem að hótelið er við hvíta sandströnd þar sem að pálmatré kyssa sandinn. Það var m.a. mjög sérkennilega að sjá allar gekkó eðlurnar sem að hlupu eftir loftinu fyrir ofan mig þegar ég var að fara að herberginu mínu sem að var í sér húsi við hótelið ( Bungalow) og að borða morgunverð við ströndina með hvítan sand og pálmatré fyrir framan sig. Þá gleymir maður um stund að tilsé land sem að heitir ísland þegar 30° gola leikur um vangann. Það eru allir svo kurteisir hér í tælandi og einkenni fólksins er að allir brosa, kannski vegna þess að þeir settu ekki spariféð sitt í íslenskan banka .. veit það annars ekki. Sá líka þegar við vorum að skoða hótel á Pattaya ströndinni hjá Bangkok að já jafnvel elstu og ljóstustu menn eru með innfæddar konu í arminum og perraglott á smettinu (ojbjakk). Sá m.a. einn sem að var örugglega 75 ára og í hjólastól og hann var með eina infædda sem að fylgdi honum og sá brosti hringinn. Fundum þarna mann sem að hefur búið í Tælandi í 20 ár (Þýskur) sem að var að hjálpa okkur með hótel málin hann er 66 ára töffa sem að aðstoðaði okkur við þetta allt saman og eigum honum þakkir skilið.
Næst erum við að fara til Kualalumpur og þurfum að heimsækja fólk frá Malaysian airwais og skoða hótel.
Ferðin heim verður löng þar sem að 12 tíma flug er frá Kuala til Amserdam þar sem og það í 3 tíma í viðbót heim á leið. Geri ráð fyrir að líkams klukkan verði frekar vanstyllt þegar ég kem heim en ég kann ráð við því.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.10.2008 | 19:49
Í ljósa skiptunum
Vorum á leiðinni heim úr verslunnar ferð og tók eftir mjög fallegu tungli yfir borginni. Fallegt samspil borgar fjalla og tungls í ljósaskiptunum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Já er búinn að vera mikið á ferðinni á vegum vinnunar. Kominn heim frá Prag aftur búinn að fara til Prag á fund tvisvar sinnum í þessum mánuði. Okkur var boðið far til Íslands á fundinum sem að við vorum á í Prag. Þannig að við fengum einkavél (B737-800) frá ákveðnu fyrirtæki þar í bæ. Átti að koma heim í gegnum Kaupmannahöfn þannig að þetta var alveg kærkomið að komast aftur heim. Dóttir mín stökk líka í fangið á pabba sínum og gaf honum koss á kinnina og tilkynnti mér að hún hafi saknað mín mikið. Ókosturinn við að koma heim á svona vél var að það var enginn fríhöfn opin... Þar sem að ég hafði lofað að koma heim með eitthvað handa prímadonnunni minni litlu. Enn ég lofaði að bæta henni þetta upp síðar.
Fékk síðan að vita það í dag að það er verið að senda mig til Bangkok og Phuket í Tælandi og Kuala Lumpur í Malasíu í næstu viku. Ég er að fara í flugvallaúttekt þar sem að við erum bráðlega að fara að flúga fyrir flugfélag sem að er með höfuðstöðvar í Prag. Þetta er frekar spennandi þar sem að ég hef ekki komið til Asíu áður .
Löng vika framundan reikna með að eyða 17 klukkustundum í flugvél á miðvikudag á leið til Bangkok.
Við ákváðum í vinnunni um daginn að vera með leynivinaleik á skrifstofunni. Það var stungið upp á þessu til þess að létta aðeins á fólki. Leikurinn gengur út á að þú átt að gleðja vinnufélaga þinn sem að veit ekki hver þú ert. Gaf mínum Leynivini pakka í morgun sem að var bara gaman. Ég fékk svo frá mínum leynivin smá pakka sem að gladdi mig mikið notaði pakkann eftir að ég kom heim rann ljúft niður (fékk hvítvín) enda er ég sælkeri mikill. Þetta virkar vel á alla á skrifstofunni því að allir eru byrjaðir að brosa sem að er gott því að margir voru komnir með smá skeifu útaf ástandinu og þetta snéri skeifunni í bros. Ekki veitir af á þessum síðustu og verstu tímum.
Ég veit ekki með ykkur en ég læt kreppuna ekki draga mig niður. Þvert í móti fær það mann til að sjá hvað er dýrmætt í lífinu. Númer 1 fjölskyldan þín. Annað kemur og fer, peningar og allt annað. Fjölskylduna áttu skuldlaust.
Það sem að er dýrmætasta í þessum heimi er:
1. Börnin þín og maki þinn
2. Ást,
3. Vinátta
4. Fríska íslenska loftið sem að þú andar að þér
5. Íslenska rokið ( það feykir fýlunni frá Íslandi örugglega fljótt)
6. Að reyna að vera betri persóna í dag en í gær.
Það besta víð ofangreinda upptalningu er að þetta kostar ekki neitt. Það er eitt sem að ég hef haft fyrir reglu bæði í vinnu og í einkalífinu. Vertu góður við fólkið sem að þú hittir þegar þú klífur lífsins brekku í leik og starfi því að þegar þú rennur niður brekkuna hittir þú þetta fólk kannski aftur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.10.2008 | 22:36
Heja Norge
Herbragð seðlabankanns virðist vera að virka nossarar vilja kannski vera vinir okkar aftur. Enginn vill að Rússar hlaupi undir bagga og þetta gerist.
Norðmenn fylgjast grannt með | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eldri færslur
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- September 2006
- Ágúst 2006