Leita í fréttum mbl.is

Vikan 21-28 Júní

Vikan hefur innihaldið hlátur, grátur, gleði og vonbrigði og brunasár,allt í bland.  Ástrós fékk gat á hausinn síðast liðinn sunnudag eftir að hafa fallið aftur fyrir sig í Kojunni sinni og niður á gólf.  Ferð á slysó og allt sem því fylgir.  Um helgina ætluðum við saman í útilegu en Hulda var búinn að vera með flensu.  Hún var að skána að við héldum, en hún var með slæman hósta og fór því til læknis á föstudeginum um kl 4.  Ég og Ástrós biðum út í bíl með allt útilegudótið, bíllinn full lestaður og við öll komin í ferða skap.  Læknirinn komast að því að Hulda var með lúgnabólgu og væri ekki að fara neitt. Hvorki í útilegu né vinnu.  Við fórum því heim aftur við lítinn fögnuð þeirrar litlu sem að var að skilja orðin útilegu þyrst. Á laugardeginum fórum ég og Ástrós saman á flúðir þar sem að fjölskildu dagur Icelandair var haldin með pompi og prakt.  Þetta var hreint sagt himneskur dagur.  Varla ský á himni og lítill sem enginn vindur.  Fullt af krökkum til a leika við.  Við eyddum þarna góðum degi.  Við fórum saman í ratleik, hún fór í hoppu kastala, borðuðum saman kvöldmat úti með öllum hinum og borðuðum ís.  Fullkominn dagur fyrir krakka og fullorðna.  Lífið og veðrið var indælt þennan dag.  Ástrós hitti Skoppu og Skrítlu sem að eru stundum í stundinni Okkar á RUV og fékk að taka mynd af sér með skrýtlu.  Í dag byrjaði dagurinn snemma eða um 5 leitið þegar ég fór á fætur og fór sem leið lyggur á Þingvöll.   Þar eyddi ég yndislegum morgni í blíðskaparveðri með sjálfum mér og veiðistönginni minni.  Það er hreint himneskt hvert skipti sem að ég kem til veiða á þingvöllum enda hef mikið dálæti á þeim stað.  Allar áhyggjur hverfa þegar vatnið nálgast.  Náttúran og umhverfi staðarins veitir innri ró og frið. Ég og Ástrós fórum svo í könnunarleiðangur í kringum vífilstaði og Vífilstaðavatn og tíndum blóm fyrir mömmu sem að var veik heima.  Helgin hefur sumsé unnið leiðindi og vonbrigði vikunnar.  Verð reindar að viðurkenna að ég er frekar steiktur og brunninn í framan og á handleggjunum.  Borgar sig að nota sólar vörn kannski.  Ástrós hló mikið þegar ég sagði að ég væri eins og steikt beikon í framan. 

IMG 20090628 0890IMG 20090628 0882,

IMG 20090628 0870IMG 20090627 0859IMG 20090627 0846IMG 20090627 0847IMG 20090627 0838IMG 20090627 0788IMG 20090627 0777 copyIMG 20090627 0779IMG 20090627 0757


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Ég

Viðar Þór Marísson
Viðar Þór Marísson

 

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband