2.4.2008 | 15:22
Byrjaður að veiða
Jæja fór og prufaði allar nýju veiði græjurnar í Vífilstaðavatni í gær . Er búinn að endurnýa allt tilbúinn í slaginn. Veiddi ekkert en það var svakalega gaman að komast loksins ofan í poll til að veiða. Það var annars enginn að fá neitt enda er það kallt að fiskurinn er ekkert að koma að landi þar til að það hefur hlýnað. Vonandi fer það að gerast .Það var kallt enda var ég þarna um kvöldmatarleitið en það kom ekki að sök þar sem að ég var það vel græjaður.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.3.2008 | 20:47
Hetjur dagsins!!!!!!!
Já hetjur dagsins eru atvinnubílstjórar. Loksins þorir einhver að mótmæla olíu og bensín verði. Styð þá heils hugar. Áfram atvinnubílstjórar!!!!
Lokun vegarins háalvarlegt mál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.3.2008 | 23:34
Gleðilega páska
Gleðilega páska. Búinn að hafa það gott um helgina. Ástrós vaknaði fyrir 7 í morgun og hvíslaði í eyrað á mér "jæja pabbi núna eru komnir páskar förum að leyta að páska egginu mínu". Höfum haft það fyrir sið að fela páska eggið hennar Ástrósar og haft svona smá páska eggja leit. Grilluðum páskalæri ásamt öðru gúmmelaði. Sá á vefmiðlum að pólverjar fagna Páskum á mjög undarlegan hátt hér á landi þ.e.a.s. leita uppi samlanda sína með barefli og exi. Mjög sérstakt. Kannski einhverskonar pólsk páskaeggja leit ?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.3.2008 | 19:55
Föstdagurinn langi 2008
Föstudagurinn langi byrjaði snemma hér hjá okkur. Ástrós var vöknuð eins og vanalega um 8 leitið. Ástrós segir að þetta sé ekki föstudagurinn langi heldi "stóri föstudagur !" veistu það ekki pabbi!!!. Ég fór allavega í langan göngu/bíltúr með myndavélina (sýnishorn hér að neðan). Þetta var fallegur dagur sem að endaði með sælkera máltið Ala Viddi. Pönnusteikur Silungur með hvítlauksgeirum og hunangs gljáa, gerist valla betra. Það er líka gott að grilla silunga flökin eftir marineringu í þessum lög. Gott að hafa miðlungs þurrt hvítvín með til að vega upp á móti sæta bragðinu eins og t.d. Lindemans Chardonnay frá Ástralíu.
Uppskrift:
2 Bleikju eða urriða flök
2 hvítlauks geirar ( meðalstórir)
Lögur ( Dugar á 2 flök)
Ein msk Mango Sweet Chutney
2 msk Hunang
1 tsk Soja sósa
Salt/sítrónupipar eftir smekk
Aðferð:
Takið flökin og þerrið. Skerið smá raufar í flökin og setjið meðalstórar flísar úr hvítlauksgera í raufarnar. Setjið smör á pönnu og hitið vel. Setjið flökin á pönnuna (roðhlið niður) og pennslið leginum smátt og smátt yfir flökin. Lækkið hitan á pönnunni og setjið lok yfir. Steikið í c.a. 2-3 mín eða þar til fisk holdið er orðið ljóst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2008 | 14:06
Ein mynd á dag í 10 daga / Mynd 10 af 10. Tveir Vorboðar
Sá tvo vorboða í morgun. Golf-dýrin eru byrjuð að stika túnin hér hjá Golfklúbbi Keilis í Hafnarfyrði með kilfurnar sínar að vopni. Það vorar snemma í ár bara að þetta haldist. Síðan eru vorfuglarnir líka byrjaðir að láta sýna sig eins og Tjaldurinn. Það hlakkar í mér að geta byrjað að veiða og eru fluguhnýtingarnar langt komnar og er verið að yfirfara stöngina og veiðigallan.
Tveir Vorboðar - Golf-dýrin og Tjaldurinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.3.2008 | 00:02
Ein mynd á dag í 10 daga / Mynd 9
Tók þessa eitthvað út í bláinn í kvöld. Það finnst ekki fallegri bær en einmitt Hafnarfjörður alla vega hér á höfuðborgarsvæðinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2008 | 22:18
Ein mynd á dag í 10 daga / Mynd 8
Jæja var að taka mynd dagsins. Þar sem að ég er í Krabbamerkinu er þetta við hæfa. Pláneta krabbans er tungið. Það kemur sér vel að vera með góða aðdráttar linsu 50-200mm.
Tungl Krabbans
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.3.2008 | 22:13
Ein mynd á dag í 10 daga / Mynd 7
Hér kemur mynd #7. Þetta er mynd af því dýrmætasta sem að ég hef búið til og er svo heppinn að hafa hjá mér. Það er hún Ástrós Erla mín. Já ég veit að þetta er smá væmið en flest erum við samála um það sama. Börnin eru það sem að skiptir máli gæti hreynlega ekki lifað án hennar. Hún er bráðum að verða 4 ára. Hún er lítil dama sem að er með skoðannir á öllu milli himins og jarðar og hún sættir sig ekki við svarið "af því bara". Hún segir: "það má ekki svara af því bara". Enda erum við farin að fá hinar skrýpnustu spurningar eins og "hvað er Guð gamall?" og þess háttar. Svaka fjör að svara þeim spurningum. Ég reyni að svara eftir bestu getu þessum fróðleiks fúsa einstakling sem að heitir Ástrós Erla. Afmælið hennar er 10 apríl en ég reikna með að við höldum upp á það þann 12.
Á Leið inn í DraumalandBloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.3.2008 | 21:46
Ein mynd á dag í 10 daga / Mynd 6
Tók þessa mynd. Gamli og nýji tíminn mætast hér á skemmitlegan máta. Þessar skreiðar hjallar eru rétt fyrir utan Hafnarfjörð á leiðinni til krísuvíkur. Skrýtin blanda.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.3.2008 | 19:25
Ein mynd á dag í 10 daga / Mynd 5
Í dag þegar við komum heim var húsið umkringt af starra. Þetta var hálfpartinn eins og í myndinni Brids eftir Alfred Hitchcock. Snaraði upp mynda vélinni og náði þessari mynd og fleirum. Sýnist einnig að vorið sé að boða komu sína með hækkandi sól.
Krókusarnir eru byrjaðir að kíkja upp og teigja sig í sólargeyslana.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
- Nóvember 2014
- Október 2014
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Desember 2006
- Nóvember 2006
- September 2006
- Ágúst 2006