Leita í fréttum mbl.is

Haupið/hjólað í og úr vinnu - season-ið bryrjað

Icelandair er með í Hjólaðu í vinnuna (má líka labba eða hlaupa).  Ég tók mig til í gær og hjóp frá Loftleiðum og heim í hafnarfjörðinn.  Þetta tók mig 1 klst og 5 mín.  Var bara frekar hressandi.  Þar sem að ég á ekki hjól mátti ég nota þessa leið.  Ætla að gera þetta þegar veður leyfir endrum og eins.  Jæja ég ætla alla vega á morgun að fara á Þingvöll og taka með mér nokkra "húkkers" þ.e.a.s. flugur og kenna þeim að synda Whistling.  Veiði tímabilið er sumsé byrjað W00t.

p.s. konan mín er farin að segja að ég sé ofvirkur ef að ég er ekki hlaupandi þá er mig að finna á endanum á veiðistöng í drullupolli út í móa.


Keflavík-Stockholm-Bergen-Kristiansand-Hirsthals-Köbenhavn-Keflavík

Við erum komin með ferðaplan fyrir opinbera heimsókn til Norðurlanda í júní/júlí.  Ætlum sumsé að heimsækja hann Mathias hálfbróðir Huldu, -norska ættingja Huldu í Odda í Noregi og fleira. 
Verðum sumsé viku í Stockholm og þaðan fljúgum við beint til Bergen og verðum þar í 4 daga.  Förum svo frá Bergen til Kristiansand og vera í 3 nætur, heimsækjum vinkonu Huldu þar og fleira.  Förum svo með ferju til Hirsthals í Danmörk og heimsækjum Erlu frænku Huldu sem að býr í Kolding (Er rétt hjá Billund). Svo komum við heim í gegnum Kaupmannahöfn. 
Þetta verður góður hringur eins gott að við fáum bókanlega frímiða þennan hring.  Flugið ætti ekki að kosta okkur mikið þess vegna.  Svo skemmtilega vill til líka að við fáum lánaða íbúð í Stockhólm og eigum gistingu vísa allstaðar þar sem að við komum þetta verður bara gaman.

2007 summer trip


Það er komið sumar... brrr

Sumarið er komið samkvæmt dagatali.  Held samt að þetta sé sk. suðrænu dagatali miðað við hita stig.  Við grilluðum í gær að sjálfsögðu í gær. Tók smá svona “Forest Gump” þ.e.a.s. ég hljóp rúma 13 kílómetra daginn fyrir sumardaginn fyrsta.  Er að komast í þokkalegt hlaupaform.  Ástrós er orðin góð af flensunni loksins. Hún fékk ælupest um daginn í fyrsta skipti greyið.  Núna líður manni hálf eins og það sé mánudagur í dag.  Svona frí í miðri viku rugla innbyggða dagatalið.  Mér finnst að það ætti að færa þessa frídaga á föstudaga eða kannski mánudaga.  Það er t.d. gert í Bretlandi þá voru þessir frí dagar í miðriviku færðir til og kallaðir "Bankholiday"(oftast á mánudegi að mig minnir). 


Here fishy fishy...!

Jæja skrapp aðeins í kvöld aftur í Vífilstaðavatn og náði enn einum urriðanum.  Var heldur minni en sá sem að ég veiddi síðast rúmlega pund en ansi fjörugur stökk út um allt þegar hann var kominn áW00t. Náði honum á "MME flugu" sem að er eftirlíking af mýflugu púpu .  En þessi ferð var nú aðalega til að prufa nýju völurnar mínar frá DAM þeim þýska gæða framleiðanda.  Þær leka ekki eins og þær sem að ég átti áður allveg þurr eftir 2 tíma í bleiti.  N.b. Síðast þegar ég fór í gömlu bomsurnar að veiða var það að lokum eins og að vera með fiskabúr í nærbuxunum FootinMouth.  Þá var nú tími til að skipta hmm.  Guð blessi netverslun veiðihornsins, því að um leið og ég kom heim keypti minns nýjar vöðlur.

Ástrós litla er með ælupest litla greyið.  Hún hefur alldrei fengið ælupest og það gengur bæði upp og niður.  Hún hrökk t.d. upp rétt áðan (er sofnuð) og fór að kúast ég náði að koma fötunni til hennar á réttum tíma.   Hún hefur ekki haldið neinu niðri.  Vorkenni henni frekar mikið. Pabbi verður heima hjá henni á morgun.

 

 


Endurspeglun

Tók snilldar mynd áðan.  Endur speglun á Ástrós Erlu minni.

Endurspeglun


Ástrós 3ja ára

Í dag eru 3 ár síðan að Ástrós fæddist.  Hún sumsé 3ja ára í dag elsku engillinn minn.  Það  var haldin afmælis veisla um helgina á laugardaginn.  Okkur þótti þessi tímasetning best þar sem að þá væri enginn í fermingu -affermingu eða slíkum mannamótum sem að okkur er tengdur.  Hún var mjög ánægð með afmælisveisluna sína enda er þetta fyrsta afmælið þar sem að hún hefur ákveðnar skoðannir á afmælisköku og fleiru afmælstengdu.  Hún fékk tvíhjól með hjálpardekkjum ásamt Sollu Stirðu hjálm í afmælisgjöf frá okkur.   Ég pakkaði hjólinu inn ásamt hjálminum ( tók 2 rúllur af gjafapappír) vakti það mikla lukku þegar hún vaknaði.  Á pakkanum var Mikkamús blaðra og vakti það enn meiri kátínu.  Páskadagurinn fór í að slappa af eftir herlegheitinn og við grilluðum dýrindis nautalund ásamt að drekka 1996 árgerða af Rioja Marques Arenso (namm!!).  Á annan í páskum var svo farið og prófað hjólið hennar Ástrósar.  Hún var frekar smeik fyrst en svo varð þetta gaman.  Hjólið var nefnilega svolítið valt og mikið óöryggi var hjá lita unganum okkar sem að lagaðist með stuðning og hvatningu frá mömmu og pabba.  Í dag fór svo Ástrós í leikskólann og þar beið hennar heilmikið ævintýri þar sem að hún fékk að baka afmælisköku með konunni sem að vinnur í eldhúsinu á leikskólanum sem að krakkarnir borðuðu með Ástrós.  Það er sumsé þannig að foreldrar koma ekki með kökur í leikskólann heldur er bökuð kaka fyrir þau í leikskólanum og þau fá að skreyta hana sjálf og velja lit á kremi og fleira sniðugt. 

IMG_20070410_3045


Helgin

Skruppum að eins upp í sveit á laugardag að heimsækja frændfólk Huldu á Snæfellsnesi.  Ástrós Erla var manna spenntust að komast upp í sveit og lá andvaka af spenning til 11 kvöldið áður.  Það var gaman að komast aðeins út úr borginni og upp í sveit. Daginn eftir eða 1.apríl fórum við með Ástrós í leikhús á Karíus og Baktus.  Það stóðst allar vonir og væntingar hennar Ástrósar.  Leikritið var á litlasviðinu í borgar leikhúsinu og var leikurinn mjög nálægt áhorfendum.  All nokkrir litlir urðu frekar skelkaðir skömmu eftir að sýningin hófst grátur og gnístan tanna, enn flestir róuðust þegar liðið var á sýningunna.  Ástrós sat bara í fanginu á pabba sínum og horfði á leikritið í ró og næði án vandræða.  Henni finnst mjög gaman að fara í leikhús enda fór hún í síðasta mánuði á Pétur og Úlfinn og núna á Karíus og Baktus.  Þetta var mjög stutt sýning eða rúmar 40 mínútur.  Ástrós er núna alveg sannfærð um að Karíus og Baktus séu ekki hjá sér enda var sagt á leiðinni heim " Karíus og Baktus eru ekki í munninum á mér ég dugleg að busta tennurnar".  Ég skrapp í veiði svo á eftir í Vífistaðavatn í rúmlega 1 og hálfan tíma og veiddi einn urriða sem var 1 pund og rúmlega það.  Ég skoðaði að sjálfsögðu í magan á honum og hann var fullur af hornsílum og púpum.  Enda veiddi ég hann á phesant tail #12 sem að ég hnýtti fyrir nokkrum dögum.

Vorveiði í Vifilstaðavatni


Flensa-nnn.. atjú-hóst-uml

Ég er búinn að vera veikur heima meginn hluta af vikunni. Núna er sunnudagur og ég er núna fyrst að komast til meðvitundar.  Hef verið með 39° hita og rúmliggjandi með lítilli meðvitund.  Leið eins og ósjáfbjarga gömlum kalli.  Er aðeins skárri í dag þó hitin byrjaður að lækka. Vonandt tekst mér að sigra þessa helf-djö (afsakið orðbragðið) flensu veiru.  Nenni ekki að vera veikur.  Hef ekki fengið svona slæma pest í mörg mörg ár.

Stefnumóta kvöld

Ég og Hulda ákváðum í gær að fara saman út að borða og í bíó. Svona stefnumóta kvöld. Heppnaðist mjög vel. Fórum út að borða á T.G.I. og svo á Music and Lyrics með Drew Barrymore og Hugh Grant.  Flott svona para mynd mæli með henni bæði fyndin og góður söguþráður fékk mann til að flissa aðeins og bara fínasta skemmtun.  Það var svolítið skondið þegar við fórum í bío þá var fullt af pörum sem að greinilega voru að fara á þessa mynd enda svona "tipical date movie", og röðin hinum meginn á ganginum Hannibal Rising var mest allt unglingar.  Mjög greinileg skipting.  Ástrós er að fara í dag með mömmu sinni á Pétur og Úlfurinn í þjóðleikhúsinu og ég er í vinnunni að Vinna.  Er að klára plagg sem að þarf að vera komið í umferð á morgun þ.e.a.s. búið að senda út sem dreifibréf innan fyrirtækisins áður en að gæðaeftirlits menn/konur IOSA koma og taka okkur ( Icelandair ) í gegn á morgun.

Þriðjudags morgun 08:10

Jæja það eina sem að ég get sagt er *geisp* í augnablikinu en kaffi bollin er að kveikja á mér hér við skrifborðið.  Það eru all nokkur atriði sem að gleðja mig um þessar myndir. En þetta gæti verið eitt af þeim.

Beach

En ég vakna bara af dagdraumi við engan öldu nið.  Heldur frost kítl kítl frá opnum glugga sem að skúringa konan skildi eftir opin á bak við mig brrr.

5217


« Fyrri síða | Næsta síða »

Ég

Viðar Þór Marísson
Viðar Þór Marísson

 

 

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband