Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Flugmyndir frá Landsliðsdegi 27. águst

Þegar landsliðið kom til Reykjavíkur kom það auðvitað með Icelandair.  Icelandair hefur stutt við bakið á landsliðinu aðalega í formi ferða til og frá landinu í ára raðir.  Icelandair "stórast" á Íslandi.  Við skipulögðum þessa uppákomu á skrifstofunni okkar og þessi uppákoma með að flytja landsliðið heim var mjög vel ú garði gerð.  Sannkallaður stjörnu fans.  Kallmerki flugvélarinnar þegar hún flaug frá keflavík til Reykjavíkur var breytt út venjulegu Icelandair flugnúmeri í "SILVER1".   Tók nokkrar myndir af þessu.

IMG_20080827_9999_7 copyIMG_20080827_9999_14 copy copy

 

IMG_20080827_9999_20 copyIMG_20080827_9999_29 copy1

IMG_20080827_9999_43 copyLandsliðið Í handbolta fagnað á Reykjavíkurflugvelli

IMG_20080827_9999_103 copy


Haustið er kósý

Sumarið er búið og haustið er því sem næst komið hmm... ég leit út um gluggann aftur og það er komið.  Mér hefur alltaf fundist haustið skemmtilegur og fallegur tími.  Jú sumarið er búið en það kemur víst annað eftir þetta (vonandi) .

Horf á þetta með jákvæðni.   Rigning er kósý.   Hvað er betra en að vera undir sæng að kúrast þegar rigningin ber glugga.  Það styttist í uppáhalds mánuðinn minn og Ástrósar litlu þ.e.a.s desember.   Fallegir haustlitir alstaðar bæði á gróðrinum og trjánum.  Svo má ekki gleyma að sitja fyrir framan sjónvarpið með kakó bolla eða rauðvínsglas og kertaljós undir teppi með kvinnunni sinni hvað er betra.

 

Haustið er KÓSÝ

 

 


Mamma 67 ára í dag

Hún mamma á afæli í dag er 67 ára.  Fórum í heimsókn til hennar og færðum henni pakka og blóm.  Þegar ég kom heim fór ég í Photoshop að vinna smá verkefni fyrir afa hennar Huldu.  Hann bað okkur um að bjarga myndum og skanna þær inn svo að þær skemmdust ekki.  Við höfum verið að gera það samviskusamlega undanfarið.  Sumar myndir eru skemmdar en ég hef bara lagað þær í Photoshop(PS).  Gaman að sjá hvernig PS  getur stundum bjargað hlutunum.

 

                            FYRIR                                                                   

IMG_0136

                                EFTIR                 

 

IMG_0136 fixed copy

 


Ber & Fjara

Fórum út í garð í gær að tína ber.  Yfirleitt er ekki mikið á rifsberja runnunum hjá okkur en núna sást varla í tréð fyrir berjum.  Víð tíndum 2 kg á rúmum hálf tíma.  Þetta verður síðan sultað áður en langt um líður.  Þó að við höfum tekið mikið af berjum er samt nóg eftir.

Ástrós að tína RifsberIMG_20080812_9999_8

Ég og Ástrós skruppum aðeins niður í fjöru í dag.  Löbbuðum saman tíndum skeljar, kuðunga og krabba.  Henni finst gaman að fara niður í sandfjöru sem að er úti á Seltjarnarnesi.  Við fundum einn stóran krabba sem að hafði rekið á land.  Þetta þótti Ástrós afar merkilegt.

Ástrós með Krabba


Nú fer haustið að nálgast

Nú fer haustið að nálgast eða allavega að kólna.  Það er nokkurskonar vendipunktur hjá mér eftir verslunnarmannahelgi.  Þá er haustið að fara að banka á dyrnar.   Þá fer maður að huga að heilsunni eftir grillmats sukkið í sumar og fleira í þeim dúr.  Fór að veiða í gærmorgunn sem að er ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að ég er búinn að veiða yfir 30 kíló af silung (bleikju og Urriða) það sem af líður sumri. 

Ég sá myndband í gær sem að fær mann til að hugsa sinn gang varðandi mat.   Þarna er kona að sýna fjögurra ára gamlan McDonalds hamborgara frá Ameríku.  Mjög áhugavert.


Verslunarmanna helgin

Verslunarmannahelgin í myndum ... læt myndarnar um að segja söguna.... 

Miðhraun I & II -  Þar sem að verslunarmanna helginna var eytt

Viddi að grilla við lækinnHulda í útilegu með mér og Ástrós

Aðalbláber

Konur geta víst grillað!!

4 punda urriði úr Baulárvallavatni - Verslunnarmanna helgin ´08

Verlunnarmanna helgin 08´- 2 og 4 punda urriðiðar úr Baulárvallavatni

Vinkonurnar í sveitinni Steinunn og Ástrós ErlaViddi sveitadurgur

AðalbláberjalingAðalbláberja tínsla á Miðhrauni

Ástrós og Hulda í berjatínsluViddi að tína ber

Í sveitinni


Ég

Viðar Þór Marísson
Viðar Þór Marísson

 

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband