Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2008

Umferðaheigin mikla framundan

Þetta myndband vekur mann til umhugsunar hvort það sé ekki betra að fá sér jeppling eða jeppa Þrátt fyrir hátt olíu og bensínverð.  Skoðið þetta og hlustið. 

Farið varlega í umferðinni um helgina.  


Steiktur dagur 26°C

sunburn 

Er ennþá í sumarfríi og skellti mér á staðeinn er við Þingvelli er kenndur.  Það var heitt og ég var að veiða þarna í 26°C hita.   Þar sem að frekar mikið endurkast er frá vatninu er ég á litinn eins og rauður Mahogny viður.  Já er frekar sólbrunnin í framan og á handleggjunum.  Ég var á tímabili að spá í að veiða ber að ofan í völunum ofan í vatninu en sem betur fer sleppti ég því því að þá væri ég með skrítið sólbrunafar á kroppnum.   Veiddi annars mikið einverja 10+ eins punda fiska og fjórar blekjur sem að voru um 2 pund.

Ástrós er kominn í leikskólan aftur og enda búin að sakna vinkvenna sinna úr leikskólum.  N.b hún brennur ekkert úti í sólinni verður bara brún.  Þetta er svindl. þar sem að ég verð bara eins og humar.

Við ætlum í útilegu um helgina.  Förum vestur á land og ætlum að tjalda í sveita sælunni í góðaveðrinu sem að verið er að spá.  Ástrós er mikil útilegu stelpa og finnst þetta allt mjög spennandi.

camping 

- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -

frá blog.is

Bilun varð í gærkvöldi í diskastæðu blog.is, en á þeirri stæðu, sem er röð tölvudiska, eru geymdar myndir, lög og myndskeið bloggara auk ýmissa stillinga varðandi útlit blogga. Á meðan viðgerðarmenn glíma við bilunina hefur bloggið verið opnað að hluta, en hægt er að lesa textann í bloggfærslum sem stendur og sumar myndir birtast.

 


Stahl & Bennström brúðkaupið í svíþjóð. Myndirnar afhenntar

Jæja Matthias og Therese eru loksins búinn að fá myndirnar sem að ég tók af þeim í brúðkaupinu í Stokkhólmi eftir að ég var aðeins búinn að vinna þær og flokka.  Þá birti ég nokkrar hér að neðan þar sem að þau eru búinn að fá mydirnar og skoða þær.  Vildi ekki birta fleiri myndir þar til að þau hjónin væru örugglega búinn að fá myndirnar afhenntar. Þau Bennström hjónin í svíþjóð eru ný kominn úr bruðkaups ferð frá Sunny Beach þannig að afending myndana frá mér stóðst tíman sem að ég var búinn að gefa þeim þ.e.a.s. að þær kæmu mjög fljótlega eftir að það kæmu heim úr bruðkaups ferðinni.

Tók líka fyrir þau myndir af undirbúningi brúðkaupsins.   Var að taka myndir frá 8 um morguninn þar til 1 um nóttina þegar brúðhjónin yfirgáfu svæðið.  Þannig að þau eiga góðar myndir af:

Undirbúningi brúðkaups

Kirkjubrúðkaupi

Úti myndataka

Veislu myndataka

 

Þetta er þriðja brúðkaupið sem að ég tek myndir í, og þetta var fyrsta skipti sem að ég tek aðmér allan pakkan.  Virkilega góð og fín reynsla fyrir mig í brúðkaups myndatöku. 

 Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri eða farið og skoðið þær í brúðkaups mynda Portfolio möppunni ( þar eru fleri myndir af þeim m.a. í kirkjunni).

 

IMG_1227IMG_1027IMG_1035 copyIMG_1205IMG_1227 copyIMG_1277 copyIMG_0945 copyIMG_0963 copyIMG_1285 copyIMG_1124 copyIMG_1280 copyIMG_1327 copyIMG_1444 copyIMG_1478 copyIMG_1309 copyIMG_1383IMG_1299IMG_1222_copyIMG_1244IMG_1253IMG_party 2 (3)IMG_party 2 (57)


Hádegisverður - hrædd eggjahræra

Vöknuðum feðginin um 9 leitið.  Veðrið var ekki gott.  Það hefur verið haust undanfarna daga.  Þannig að við Ástrós höfum dundað okkur þessa vikuna í fríinu. 

Okkur datt í hug að hafa eggjaköku í hádeginu.  Það endaði með óvæntum "twist".  Egginn urðu hreinlega hrædd við að fara á pönnuna.   Svo að við fórum í smá myndavéla leik í leiðinni.

Egg dauðans

Svo varð til eggjakaka sem að Ástrós Erla hjálpaði til við að elda.

Ástrós að elda eggjahræru með pabba

Fiðrilda hundurinn Button er farinn heim til sín til eiganda síns.  Þð er hálf tómlegt hér hjá okkur án hvutta.  Við erum búinn að komast að því að það væri mjög gaman að eigna hund.   Eftir að passa bæði Papilion (fiðrilda hund) og Cavalier hunda komumst við að því að Cavalier er betri fjölskildu hundur þar sem að Papilion hundar eru í eðli sinu ekki mjög barnvænir hundar.   Cavalier er bæði rólegri og skemmtilegri að mínumati þó svo að Papilion hundar hafi sína kosti þá er Cavalier með vinninginn þegar á heildina er litið. 

 


Útilegu helgi...

Já fórum í útilegur hum helgina.  Ástrós hefur langað svo mikið til að fara í útilegu og loksins varð það úr að við fórum.   Fórum með tjaldið og fullan bíl af dóti fólki og hund meðferðis í leit að tjaldstæði.  Vorum búinn að velja Úlfljótsvatn sem tjaldstað þar sem að það væri ekki lang frá borginni þar sem að bensín dropinn er ekki sá ódýrasti í dag og vegna þess að þar væri nóg við að vera fyrir hana Ástrós okkar.  Þegar hinsvegar þangað var komið var varla stætt vegna roks.  Við ákváðum því að leita fyrir okkur í Þrastalundi þ.e.a.s. á tjaldstæðinu þar sem að var svona til vara ef að Úlfljótsvatn myndi klikka.  Þegar þangað var komið var gott skjól og nóg pláss sem að svo fylltist af tjöldum og hjólhýsum og fellihýsum þegar að daginn tók að lengja.   Þessi staður hefur ekki upp á mikið að bjóða fljótt á litið.  Bara tvö karla og kvenna klósett í misgóðu ásigkomulagi og ekkert við að vera fyrir ungstu kynslóðina. T.d. er þarna rólustæði en engar rólur vegna þess að einhver tjaldgestanna hafði einhverjum dögum áður stolið rólunum úr rólustæðinu.  Það besta við þennan stað er staðsetninginn í svona góðu skjóli og flottar gönguleiðir.

Ástrós að elda í útileguÁstrós og manna að borða inni í útilegunni

Viddi að hella uppá kaffi í útilegunni

Þrátt fyrir allt þetta var Ástrós fljót að finna sér vinkonur til að leika við langt fram á kvöld.  Það tók Ástrós reindar dágóðan tíma að sofna fyrsta kvöldið vegna þess að þetta var allt svo spennandi, mikil birta og ennþá dagur úti ( íslenskt sumarkvöld).  Þetta var frekar rólegur staður og besta veður allan tímann og er ég og Hulda vel sólbrunninn eftir helgina.  Leit reindar út eins og blanda af Hreindýrinu rúdólf  of þvottabirni í gærkvöldi vegna sólbrunans.

Ég fór síðan að veiða í þingvallavatni Whistling snemma sunnudags morguninn og kom til baka með 10 bleikjur flest allar um 2 pund.  Veiddi fullt af fiski sem að var um eitt pund en sleppti honum öllum þar sem að ég hreynlega kom honum ekki með til baka.  Þar sem að það var sérstaklega góð veiði þennan morguninn ákvað ég að miða við 2 pund, þá myndi ég hirða fiskinn.

2 þingvalla bleikjur í Júlí 2008

Góður afli 20.júl 08 úr þingvalla vatni

Kom til baka úr veiðinni um 11 leitið og þá var pakkað saman og haldið heim á leið.  Góðri sólríkri helgi lokið og allir ánægðir.

Ástrós útilegu stelpa


Veiðidagur

Byrjaði daginn snemma og skellti mér á þingvallavatn í morgun.  Vatnið hreynlega kraumar af fiski.  Það var fiskur á í örðu hverju kasti.  Ég kom heim með 10 stk af Þingvallableikju 1 til 3 pund.  Slepti þeim sem að smærri voru. Svo var þetta flakað þegar heim var komið og sett í frysti tilbúið á grillið eða á pönnuna. Frábær veiðidagur.

Veiði veiði - Þingvellir 10júl08

 


Svíþjóð, Brúðkaup og brúðarmyndataka

Erum búinn að vera hér í Svíþjóð síðast liðna viku í Årsta Havsbad (c.a. 25 km frá Stokkholm).  Aðal ástæða ferðarinnar var að koma í brúðkaup bróður Huldu hans Matthias Bennström.  Hann giftist Therese í fyrradag með mompi og prakt.  Þau eiga sitthvort barnið frá fyrra sambandi.  Eftir brúðkaupið tóku þau svo öll upp eftrinafnið Bennström sem að Matthias hafði einn áður.

Ein af aðal ástæðum ferðarinnar var að taka myndir í brúðkaupi þeirra.  Það gekk vel og var ég þess heiðurst aðnjótandi að taka allar myndir í brúðkaupinu.  Tók myndir fyrir brúðkaupið í kirkjunni, úti mynda töku auk þess að taka myndir í kirkjunni.   Ég tók samtals á laugardaginn yfir 1300 myndir. 

Það var gaman að taka þátt í þessu og sjá þeirra hefðir o.s.fr. sem að margar hverjar voru líkar okkar og aðrar svo gjör ólíkar. 

Við erum búinn að fá gott veður allan tíman eða meðal 25°C og sól mest allan tíman.  Viðkomum síðan heim á morgun frá Stokkhólmi.

Hér eru nokkar myndir sem að ég tók.

IMG_1003 copyIMG 0962 copy2

IMG 0986 copyIMG 1202IMG_1061 copy2


Ég

Viðar Þór Marísson
Viðar Þór Marísson

 

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband