Leita í fréttum mbl.is

Flísar í litlum krílum og fiskur dagisins

Já dagurinn eftir vinnu hefur ekki gengið áfallalaust fyrir sig hjá litlunni minni.  Hún fór út að tína blóm handa pabba og kom hlaupandi inn há grátandi þar sem að hún hafði fengið flísar úr blómi sem að hér er í garðinum.  Eftir miklar og strangar samningaviðræður tókst mér að taka flísarnar úr hendinni.  Það leit út fyrir að samningar myndu ekki nást en eftir mikinn grát og vangaveltur lítillar stelpu var fallist á að fá plástur þ.e.a.s. prisnessu plástur og smá nammi.  N.b. bara að fá að skoða hendina kostaði 15 mínútna samninga viðræður og tók þetta all nokkra stund eftir það. 

Elduðum annars fantagóðan fisk við feðginin sem töfruðum úr því sem að til var á þessum bæ og útkoman úr þessari tilraunaeldamennsku kom tja bara á óvart.

Fiskur í eldföstumóti með fetaosti og tómötum ala Viddi.

  

2 dl Hrísgrjón

2 Ýsuflök

Nokkrir sveppir

2 tómatar

½ Krukka MS fetaostur

Rifinn ostur

 Sósa á fisk

Aromat ( eftir smekk)

1 dl AB Mjólk

1 mat sk Létt Majones

Eftirlæti hafmeyjunnar (Pottagaldrar)

MCormick Italian sesoning ( eða sambærilegt)

 

Sjóðið hrísgrjónin og setjið í botninn á eldföstu móti. Skerið fisk flökin í hæfilega bita og setjið yfir hrísgrjóninn og saltið fiskinn. Dreifið sveppunum jafnt yfir. Setjið svo tómatsneiðar yfir.  Dreifið svo sósunni yfir fiskinn og tómatana og sveppina.  Að lokum dreifið fetaostinum yfir.  Setjið svo rifinn ost eftir smekk.  Setjið inn í heitan ofn og bakið við 200° í 20 mínútur.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét M

þetta er svipað og ein uppskrift hjá mér -- mjög gott en gott að hafa grjónin sér --- svo er líka gott að setja fist í mót og salta og pipra, blanda svo saman 1/2 líter AB mjólk og ein krukka pestó af eigin vali hella þessu yfir fiskinn og setja í ofninn gott að setja saxaða steinselju yfir áður en þetta er borið fram ef maður á til steinselju--- þetta er vinsælt hjá öllum á okkar heimili og er nánast sleikt upp úr fatinu-- með þessu er gott að hafa hrísgrón og salat  

Margrét M, 4.5.2008 kl. 14:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Ég

Viðar Þór Marísson
Viðar Þór Marísson

 

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband