Leita í fréttum mbl.is

What are you sinking about?


Ofan greindir sjóarar eru í svipaðri stöðu og við íslendingarnir þ.e.a.s. ekki í góðum málum.  Hvert ættum við að fara eina landið sem að tekur íslendingum opnum örmum er sennilega þeir sem að við höfum litið niður á pólverjar vilja allt fyrir okkur gera þegar vinirnir hafa brugðist okkur.  Bretar trampa á puttunum á okkur á bjarg brúninni, danir bíða fyrir neðan með opnar líkkistur og hollendingar sjá um að grafa okkur ókeypis með bros á vör og þetta kölluðum við vini okkar.  Fussum svei eins og karíus og baktur myndu segja.

Kannski ætti maður að slá öllu upp í kæruleysi ef að allt fer á versta veg flytja til Frakklands og fara að rækta vínvið.  Ég gæti kallað vínið "Rêves nordiques" eða norður draumar.   Hver veit það eina sem að þarf er góð hugmynd sem að virkar og la passion fyrir hlutunum.  Margir eru að spá og spögulera hvað á að gera í stöðunni sumir fara og aðrir eru hér á klakanum.  Ég skal bara hjálpa þeim að pakka sem vilja fara..... Ekki er ég að fara (Bank bank,Sjö, Níu, þrettán).  Tek framm að þetta bank er ekki tengt íslenskum banka á neinn hátt.

Þá er bara að Cool Brosa og skella á sig rafsuðuhjálminum því að ég er svo bjartsýnnW00t.  Ekki hægt að gera annað en að halda gleðileg jól á næstunni.  Skreytum meira og skellum upp meiri ljósum það er ég allavega búinn að ákveða.  Fólk mun fá sykur húðað jóla sjokk þegar það kemur í þennan bæ þegar nær dregur jólum Whistling.  Hef verið þekktur fyrir að vera jóla kall... ætla núna að vera súper jóla kall bara til sýna kreppunni hnefanna og gleðja í leiðinni litluna mína.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Ég

Viðar Þór Marísson
Viðar Þór Marísson

 

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband