Leita í fréttum mbl.is

Sumardagurinn fyrsti

Sumardagurinn 1. er merkilegur frídagur fyrir það eitt að það er ekki komið sumar.  En þessi dagur gefur mörgum tækifæri á að lengja helgina.  Mæðgurnar fóru saman í sumarbústað með fleiri mæðgum (konuferð).  Ég er einn heima sem að getur verið ósköp indælt.  Enginn að biðja mig um neitt þarf bara að hugsa um sjálfan mig.  Var reyndar að átta mig á því að ég hef ekki verið einn heima án konu og barns í X langan tíma.  Ég grillaði því sóló í gær og skolaði þessu með rauðvíni.  Ég grillaði appelsínu marineraðan svínahnakka sem að kom bara askoti vel út. 

Nú fer veiðitímabilið að hefjast fyrir alvöru.  Ég er m.a. að fara að kaupa mér nýjar vöðlur og vöðluskó sem að er fjárfesting sem að borgar sig.  Er búinn að gefast upp á því að fara með eitt par af neopren vöðlum á ári og vera alltaf í köldu fótabaði í vöðlunum.  Búinn að fá ágætt tilboð frá manni sem að ég þekki sem að á veiðibúð á höfuðborgarsvæðinu (góðan vinadíl) á "brand" öndunarvöðlum og skóm.  Þetta "brand" er notað m.a. af leiðsögumönnum og ætti að duga í góðan tíma með réttri meðhöndlun. 

Ástrós fær frá okkur skemmtilega sumargjöf hún fær Sollu Stirðu jogging galla.  Hulda fór út í búð í fyrra dag að ganga frá kaupunum.  En fleiri voru að greinilega á sömu línu með sumargjöf og endaði Hulda á því að flakka milli búða til að finna þetta og fann buxur í einni búð og peysu í annari búð.

P.s fyrsti fiskurinn er kominn á þurrt hjá mér.  Fór í meðalfells vatn náði einum pundara 13.apríl.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Ég

Viðar Þór Marísson
Viðar Þór Marísson

 

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband