Leita í fréttum mbl.is

Jóla hvað?

Getum við keypt jólin?
Núna er mikið áreiti frá blöðum, sjónvarpi og útvarpi með "jóla kaupa hitt og þetta."  Maður heyrir t.d. "Jólin koma alveg örugglega ef að þú kaupir ####" eða " Þessi einstaki hlutur kemur með jólin til þín" eða " alveg ómissandi með jólamatnum" nú eða þessi "það sem að allir vilja er risa ofur sjónvarpstilboð, aðeins í dag 499.999 kr".
Mér finnst áreitið ekki minnka neitt með hverju árinu. Þetta er orðið ofaukið. Kaupmenn fá jólaandann yfir sig þegar þeir finna VISA brunalykt, sem er fyrir þeim svona eins og grenilykt fyrir okkur. Ég er búin að ræða það við mína konu hvort að við ættum ekki bara að flýja upp í sumarbústað næstu jól og prufa að upplifa jólin í burt frá öllu jólastressinu.
T.d. síðustu jól var ofurkapp lagt á að allt væri fullkomið og þegar litla píslið okkar hún Ástrós var búin að opna jólapakkana sína þá kom svona spennufall eins og maður hafi lokið við að selja milljón hlutabréf í Jól EHf fyrir lokun kl: 18 þann 24.des. Sem betur fer er VISA frændi ekki með brunasár þetta árið hjá okkur, enda erum við með svona fyrirframgreitt debit með kredit kort sem er mjög sniðugt, enda fara margir yfir um jólin á krítarkortinu eins og Laddi segir í laginu.
Ég sá t.d. jólasveina í Kringlunni í gær en svo fattaði ég það að í flest skiptin sem börnin okkar sjá jólasveina þá eru þeir í Kringlunni eða Smáralind. Hvað eigum við að segja þegar spurt verður "Pabbi af hverju eru jólasveinarnir alltaf í Kringlunni og Smáralind?". Kannski þarf að breyta jólasveinasögunum og hætta að segja að þeir búi upp í fjöllum og segja í staðinn að þeir búi uppi á háalofti í Smáralind og Kringlunni. Þá verður auvelt að svara þessu.

Maður spyr sig er þetta jólaandinn? Nei ekki finnst mér það. Það er nú einu sinni þannig að jólin eru í hjartanu og hver og einn hefur sínar minningar um tilhlökkun jólanna þegar við vorum minni. 
Mér fannst t.d. jólin vera að koma þegar búið var að skreyta jólatréð á Þorláksmessu og jólatréð var komið upp í allri sinni dýrð og ilmurinn af jólahangikets suðu sveif um loftið. 
Núna hef ég líka ákveðið að þessi jól verða tekin frekar rólega. Manni á að hlakka til að klukkan slái sex á Aðfangadag eins og þegar maður var lítill en ekki kvíða því hvort að allt nái að klárast fyrir klukkan sex.
Og þegar öllu er á botninn hvolft þá er nú niðurstaðan sú að við viljum að börnin okkar njóti jólanna enda er þetta barnahátíðin mest eins og segir í kvæðinu. Ég veit bara að henni Ástrós minni er farið að hlakka til og það er það sem skiptir máli. 
Tilhlökkun barnsins til jólanna og líka barnsins sem býr innra með okkur öllum. 

santa VISA

Kortaklippir 14.jólasveinninn.

Kemur eftir jól þegar

 mamma og pabbi sofa

og klipp VISA kortið þeirra í mola.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét M

sammála þér

Margrét M, 11.12.2006 kl. 09:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Ég

Viðar Þór Marísson
Viðar Þór Marísson

 

 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband