Leita í fréttum mbl.is

Þegar laufin sofa liggja spaðarnir andvaka (og hósta)

Já hóst og stuna, sniff og atsjú!!!!!!  Já bara allur pakkinn.  Er búinn að vera með hálsbólgu og kvef(kvebb) í nebba.  Þetta er að lagast fyrir utan það að ég hósta eins og gamall Trabant sem að vill ekki starta (thu, thu, hóst).  Var að prufa "Adobe Lightroom" sem að er forrit fyrir áhugafólk og lengra komna í ljósmyndun.  Verð bara að segja að það kemur mér nokkuð á óvart þetta forrit.  Hef allatíð verið meiri svona Photoshop kall, en þetta lofargóðu.  Smellti nokkrum myndum af áðan af glasi með sítrónu.  Gat ekki verið meira svona eitthvað út í loftið.  Útkoman voru gráar myndir með líflausri sítrónusneið til að byrja með.

En eftir smá fikt var þetta meira bitastætt.  frískt, svalt og seiðandi eins og þessar ættu kannski að segja.

 

frískt

frískt..........

svalt     Seiðandi

.....Svalt.................................................... og seiðandi.

Held að ég fikti aðeins meira með þetta forrit þegar ég er að vinna myndirnar mínar.

Sumarfríið er handan við hornið.  Það er í mörg horn að líta í fríinu eins og alltaf. 

 


Vikan 21-28 Júní

Vikan hefur innihaldið hlátur, grátur, gleði og vonbrigði og brunasár,allt í bland.  Ástrós fékk gat á hausinn síðast liðinn sunnudag eftir að hafa fallið aftur fyrir sig í Kojunni sinni og niður á gólf.  Ferð á slysó og allt sem því fylgir.  Um helgina ætluðum við saman í útilegu en Hulda var búinn að vera með flensu.  Hún var að skána að við héldum, en hún var með slæman hósta og fór því til læknis á föstudeginum um kl 4.  Ég og Ástrós biðum út í bíl með allt útilegudótið, bíllinn full lestaður og við öll komin í ferða skap.  Læknirinn komast að því að Hulda var með lúgnabólgu og væri ekki að fara neitt. Hvorki í útilegu né vinnu.  Við fórum því heim aftur við lítinn fögnuð þeirrar litlu sem að var að skilja orðin útilegu þyrst. Á laugardeginum fórum ég og Ástrós saman á flúðir þar sem að fjölskildu dagur Icelandair var haldin með pompi og prakt.  Þetta var hreint sagt himneskur dagur.  Varla ský á himni og lítill sem enginn vindur.  Fullt af krökkum til a leika við.  Við eyddum þarna góðum degi.  Við fórum saman í ratleik, hún fór í hoppu kastala, borðuðum saman kvöldmat úti með öllum hinum og borðuðum ís.  Fullkominn dagur fyrir krakka og fullorðna.  Lífið og veðrið var indælt þennan dag.  Ástrós hitti Skoppu og Skrítlu sem að eru stundum í stundinni Okkar á RUV og fékk að taka mynd af sér með skrýtlu.  Í dag byrjaði dagurinn snemma eða um 5 leitið þegar ég fór á fætur og fór sem leið lyggur á Þingvöll.   Þar eyddi ég yndislegum morgni í blíðskaparveðri með sjálfum mér og veiðistönginni minni.  Það er hreint himneskt hvert skipti sem að ég kem til veiða á þingvöllum enda hef mikið dálæti á þeim stað.  Allar áhyggjur hverfa þegar vatnið nálgast.  Náttúran og umhverfi staðarins veitir innri ró og frið. Ég og Ástrós fórum svo í könnunarleiðangur í kringum vífilstaði og Vífilstaðavatn og tíndum blóm fyrir mömmu sem að var veik heima.  Helgin hefur sumsé unnið leiðindi og vonbrigði vikunnar.  Verð reindar að viðurkenna að ég er frekar steiktur og brunninn í framan og á handleggjunum.  Borgar sig að nota sólar vörn kannski.  Ástrós hló mikið þegar ég sagði að ég væri eins og steikt beikon í framan. 

IMG 20090628 0890IMG 20090628 0882,

IMG 20090628 0870IMG 20090627 0859IMG 20090627 0846IMG 20090627 0847IMG 20090627 0838IMG 20090627 0788IMG 20090627 0777 copyIMG 20090627 0779IMG 20090627 0757


Hæ hó og jíbbí jei .... tralla ralla ra


Það er búið að vera gaman í dag hjá okkur.  Dagurinn byrjaði kl 11 í leiktækjum og bátsferð með pabba.  Fórum svo heim og grilluðum pulsur fyrir Ástrós.  Eftir það var lagt aftur í hann og horft á skemmtiatriði á Vífilstaðatúni.  Eins og Ástrós segir sjálf "ég ætla bara að dreyma það sem að gerðist í dag það var svo skemmtilegt".

Fannst við reyndar vera rænd þegar ég benti ástrós á að velja sér blöðru úr einum sölubásnum.  meðal stór Hello Kitty blaðra varð fyrir valinu að sjálfsögðu.  "Hvað kostar hún" sagði ég, "2500 kr" segir sölu daman.  Ég spurði hana hvort hún væri að grínast.  Hún sagðist ekki grínast með svona hluti.  Alla vega varð litla daman ánægð þrátt fyrir blöðru okur. 

Dagur biðraðana er búinn.  En það má með sanni segja að 17.júní sé dagur barnanna.

17Júni 2009 - Mynd117Júni 2009 - Mynd217Júni 2009 - Mynd317Júni 2009 - Mynd417Júni 2009 - Mynd5 17Júni 2009 - Mynd6

 


Júní og það er komið sumar

Skrapp í morgun á Þingvelli eins og ég geri stundum.  Mætti snemma á svæðið eða um 5 leitið. Fljótlega fékk ég eina væna bleikju.  Þegar klukkan fór að slá í átta ákvað ég að breyta um flugu og setti Watson Fancy fluguna (mína útgáfu) undir.  Ekki leið að löngu þar til að ég fann eina töku djúpt niðri.  Ég hélt að þetta væri eins og vanalega rúmlega 1-2 punda bleikja. En nei upp reis hryggur úr dýrsins úr vatninu þetta leit út eins og um lagarfljóts orminn væri að ræða.  Mér kross brá við þetta.  Línan rauk út í vatn og upphófst mikið reiptog.  Eftir allnokkra stund áttað ég mig á því að um væri að ræða frekar stóran fisk.  Ég sá glitta í bleikan magann og sá boltann rjúka í allar áttir til að reyna að losa sig.   Fiskurinn tók all nokkrar kröftugar rokur og gerði fjölmargar tilraunir til að spretta í burtu í slíta úr sér, en þökk sé réttum slaka á línunni gerðist það ekki.  náði ég loksins að þreyta dýrið.  Höfðinginn sá bleiki komst að lokum í háfinn eftir rúmar 10 mínútna bardaga.  Ég stóð eftir með hjartslátt og adrennalín flæði í hámarki. Ég hef ekki náð stærri bleikju í þingvallavatni hún var 53 cm og tæp 2 kíló.

Erum búin að grilla þó nokkuð um helgina og hafa það gott.  Það eina sem að skyggði á helgargleðina var að Ástrós litla er búin að vera með flensu og litla sílið mitt hefur verið með ljótan hósta síðan á fimmtudag.  Þetta er reyndar í rénun og vonum það besta.

Það var hálf kaldhæðnislegt hér áðan þegar ég bar búinn að grilla að þá byrjaði þátturinn "The Biggest Looser"  þannig ég settist í sófann með fullan maga af grillmat og stóran eftirrétt í hendinni. Kannski svipar þetta til að fara fullur á AA fund hihi.

 


Rauðvínslegin skammarræða...

Kæra ríksistjórn og aðrir bankamenn (rassálfar) .... 

 Verði ykkur að góðu.  Ég tók ekki þá í þessi svínaríi þessara viskí legnu víkinga arðræningja kapítalista. hmm spurning um að fara úr landi?  Hvað eru margir sem hugsi það sama.  Annar hver maður og önnur hver kona á íslandi.  Ekki ætla ég allavega að láta mín börn borga þessa súpu. Þið þi getið ýmindað ykkur rest....


Nýtt Tjald og fiska fjall

Fór í gærkveldi í Þingvalla paradís.  Veiddi 8 stk. Hélt eftir 4 sem að er hægt að grilla.  Frystikistan er byrjuð af fyllast strax. Þetta var bara gaman.  Hulda mín er hinsvegar kannski ekki ánægð með uppátækið þar sem að fiskur fer að flæða upp úr kistunni.  Nóg um það mál.

Við hulda keyptum okkur nýtt tjald í gær fyrir sumarið.  Það er frekar stórt eða 6m x 4m.  Bara fortjaldið er 2,8m x 4m.  Allavega erum við með tjald sem að er stærra en fellihýsin (skuldahalarnir).  Það kemst fyrir í geymslunni heima og þarf ekki að fara í skoðun hjá ríkinu á hverju ári og kostar bara brot af því að hafa fellihýsi eða tjaldvagn tala nú ekki um auka eldsneytis eyðsluna með því að draga með sér herleg heitin. Kreppu kostur fyrir sumarið.  Getum svo búið í tjaldinu þegar við flýjum land Smile

Tjaldið er með svefnpláss fyrir 7 í tveim herberjum sem að eru aftast í tjaldinu.

Hér er mynd af tjaldinu fyrir neðan.

Tjaldið 2009


Skrepp í Þingvallasveit

Skrapp í gær í Þingvallasveit.  Hef haft það fyrir sið að byrja ekki að veiða á þingvöllum fyrr en um 20maí.  Árangurinn lét ekki á sér standa í þessa 2 tíma sem að ég stoppaði á staðnum mínum góða.  Fékk 2 bleikjur sem að voru feitar og vænar 2 pund og 3 pund.  Var líka að prufa nýju vöðlurnar Goretex mínar frá Slate og Orvis vöðluskó.  Virkar bara vel. 

Þingvallavatn er oft lengi að taka við sér þar sem að landið og vatnið stendur frekar hátt yfir sjávarmáli er c.a. mánuði á eftir miðað við gróðurfar og veiði í strandvötnum.  Er farinn að þekkja staðinn ansi vel þar sem að ég hef verið að veiða þarna í nokkur ár með flugu.  Gott að miða við 20.maí þá kemur bleikjan að landi í kringum þann tíma yfirleitt. 

 Erum byrjuð að plana sumar fríið.  Það verður ekki farið til útlanda eins og undanfarin tvö ár heldur að flakka innanlands.  Búinn að gera samning við huldu um að ég fæ að taka stöngina með hihi.

Búinn að vera í löngu helgar fríi þar sem að leikskóli Ástrósar er í fríi frá miðvikudegi til þriðjudags.  Leikskólakennararnir fóru í námsferð til Canada.

Fyrstu þingvallableikjurnar 2009 - Mynd 1Fyrstu þingvallableikjurnar 2009 - Mynd 2


Keyrsla um helgina - mikið að gera

Það var heldur betur mikið að gera um helgina....

Á laugardag var dagurinn tekinn frekar snemma eða um sjö leitið þar sem að Ástrós Erla var að taka þátt í ballett sýningu um morguninn. 

Balletbær 1Ástrós Balletmær 2 Ástrós Balletmær 3Ástrós Balletmær 4

Ástrós Balletmær 5

Svo var kosið X-eitthvað á kjörstað hér í Hafnarfirði - og já ég kaus rétt! Þegar því lauk var Ástrós svo að leika gesta hlutverk í upptökum á stuttmynd sem að er eitt af útskriftar verkum nema í Kvikmyndaskólanum (Halldór mágur leikstýrir) og lék hún m.a. á móti Þresti Leó (Mikka ref). 

Ástrós í Kvikmynda settinu 1 Ástrós í Kvikmynda settinu 1 - Útitaka

Ástrós í Kvikmynda settinu 2 - Útitaka

Þegar tökum var lokið var farið að líða á dag og þá fórum við í kosningavöku til Sigga og Hófí.  Voða gaman.

Sunnudagur annar dagur í tökum hjá þeirri litlu.  Hún tekur þessu furðu vel að leika fyrir framan myndavélarnar.  En um leið og hún fékk nóg tókum við hana heim.  Leikararnir breyttu þessu líka í leik sem að auðveldaði henni að vinna sinn part í myndinni.  Eftir hádegi var svo farið í fermingu hjá þeim yngsta sem að Magga systir á honum Bjarna Freyr .  Gáfum honum tölvu tösku fyrir kjöltu tölvu með Sigga bróðir og co.  Góður matur og alltaf gaman að hitta ættingja sem að maður hefur ekki séð lengi.  Vona að frændi sé ánægður með daginn.

Ég fékk aukahlutverk í myndinni sem að ég leysti vonandi á góðan hátt, var aukaleikari í atriði með Kristján Franklín. 

Hér fyrir neðan er myndband úr ballet sýningunni.


Sumardagurinn fyrsti

Sumardagurinn 1. er merkilegur frídagur fyrir það eitt að það er ekki komið sumar.  En þessi dagur gefur mörgum tækifæri á að lengja helgina.  Mæðgurnar fóru saman í sumarbústað með fleiri mæðgum (konuferð).  Ég er einn heima sem að getur verið ósköp indælt.  Enginn að biðja mig um neitt þarf bara að hugsa um sjálfan mig.  Var reyndar að átta mig á því að ég hef ekki verið einn heima án konu og barns í X langan tíma.  Ég grillaði því sóló í gær og skolaði þessu með rauðvíni.  Ég grillaði appelsínu marineraðan svínahnakka sem að kom bara askoti vel út. 

Nú fer veiðitímabilið að hefjast fyrir alvöru.  Ég er m.a. að fara að kaupa mér nýjar vöðlur og vöðluskó sem að er fjárfesting sem að borgar sig.  Er búinn að gefast upp á því að fara með eitt par af neopren vöðlum á ári og vera alltaf í köldu fótabaði í vöðlunum.  Búinn að fá ágætt tilboð frá manni sem að ég þekki sem að á veiðibúð á höfuðborgarsvæðinu (góðan vinadíl) á "brand" öndunarvöðlum og skóm.  Þetta "brand" er notað m.a. af leiðsögumönnum og ætti að duga í góðan tíma með réttri meðhöndlun. 

Ástrós fær frá okkur skemmtilega sumargjöf hún fær Sollu Stirðu jogging galla.  Hulda fór út í búð í fyrra dag að ganga frá kaupunum.  En fleiri voru að greinilega á sömu línu með sumargjöf og endaði Hulda á því að flakka milli búða til að finna þetta og fann buxur í einni búð og peysu í annari búð.

P.s fyrsti fiskurinn er kominn á þurrt hjá mér.  Fór í meðalfells vatn náði einum pundara 13.apríl.

 


Líftryggingar

Þessir andskotar seldu mér líftryggingu í seint í janúar.  Ég skrifaði undir en hætti svo við stuttu síðar.  Það kostaði 10000 kr að hætta við eftir undirskrift þrátt fyrir að ég hafi í raun ekki notað þessa andskotans djöfulsins líftryggingu þeirra.  Ég vara við sölumönnum líftrygginga því að það að hætta við getur verið fjandanum erfiðara.  Fari þessir sölumenn allir til andskotans og megi þeir brenna í víti og saltsýruDevil Angry.

Nú er ég alveg brjál


« Fyrri síða | Næsta síða »

Ég

Viðar Þór Marísson
Viðar Þór Marísson

 

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband