Leita í fréttum mbl.is

Here fishy fishy...!

Jæja skrapp aðeins í kvöld aftur í Vífilstaðavatn og náði enn einum urriðanum.  Var heldur minni en sá sem að ég veiddi síðast rúmlega pund en ansi fjörugur stökk út um allt þegar hann var kominn áW00t. Náði honum á "MME flugu" sem að er eftirlíking af mýflugu púpu .  En þessi ferð var nú aðalega til að prufa nýju völurnar mínar frá DAM þeim þýska gæða framleiðanda.  Þær leka ekki eins og þær sem að ég átti áður allveg þurr eftir 2 tíma í bleiti.  N.b. Síðast þegar ég fór í gömlu bomsurnar að veiða var það að lokum eins og að vera með fiskabúr í nærbuxunum FootinMouth.  Þá var nú tími til að skipta hmm.  Guð blessi netverslun veiðihornsins, því að um leið og ég kom heim keypti minns nýjar vöðlur.

Ástrós litla er með ælupest litla greyið.  Hún hefur alldrei fengið ælupest og það gengur bæði upp og niður.  Hún hrökk t.d. upp rétt áðan (er sofnuð) og fór að kúast ég náði að koma fötunni til hennar á réttum tíma.   Hún hefur ekki haldið neinu niðri.  Vorkenni henni frekar mikið. Pabbi verður heima hjá henni á morgun.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Margrét M

æi greiið litla . vonandi er þetta bara nokkra klukkutíma að gana yfir ..

Margrét M, 17.4.2007 kl. 09:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Ég

Viðar Þór Marísson
Viðar Þór Marísson

 

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband