Leita í fréttum mbl.is

Guð er kona

Já þetta voru orð Ástrósar minnar (3 ½ ára) fyrir svefninn.  Hún fann biblíusögur barnanna lengst niðri í skúffu.  Þetta er bók sem að presturinn gaf okkur þegar hún var skírð.  Þessa bók átti ég að lesa spjaldanna á milli fyrir svefninn í heilu lagi.  Ég samdi við hana um að lesa þetta í hæfilegum pörtum þar sem að ég myndi sennilega sofna sjálfur.  Við lásum um Örkina hans Nóa að sjálfsögðu. Flottar myndir voru aðdráttaraflið og stutt og hnitmiðuð saga.  Eftir söguna komu svo spurningarnar.  Hver er Guð?  Ég náttúrulega spurði hana til baka hvað finnst þér.  Ástrós svaraði : emm Guð er kona sem að býr lengst uppi á himninum, sagði hún með ákafa og mikilli innlifun.   Já hvað er næst, af hverju er himinninn blár kom um daginn. Pant ekki fá að útskýra hvernig börnin verða til!!! Alla vega ekki ennþá.

 

Vorum að passa hund í 2 vikur um daginn.  Það var Cavalier hundur sem að heitir Ýmir.  Eftir þessa pössun dauðlangar okkur í Cavalier.  Og við sem að sögðum að við ætluðum alldrei hugsa um að fá okkur hund.  Þessi náði að bræða okkur heldur betur.  Hinn ljúfasti hvutti liktar ekki eins og grænlensk gólftuska(eins og margir hundar), geltir ekki (nema á ketti og aðra hunda), barngóður og fer ekki mikið úr hárum og er hið mesta gæða blóð.  Fólkið sem að er með hann fór til florida í 2 vikur og við tókum að okkur pössun á meðan. Komumst að því fljótt þegar að hann var farinn að við söknuðum hans hreinlega. Kannski fáum við okkur svona hvutta í komandi framtíð hver veit.

 

 

Ástrós og Ýmir í labbitúrÁstrós í Bjarkar húsinu um daginn

 

Fer víst til Seattle á næstunni í nóvenber byrjun, í rúmlega 3 vikur.  Vinnann er að senda mig á námskeið.  Námskeiðið heitir Operational Engineering Fundimentals og er fyrra stig af tveimur sem að ég tek hjá Boeing í Seattle.  Tek sennilega seinni partinn á næsta ári.  Flýg til Minneapolis og þaðan yfir til Seattle.  Frekar langt ferðalag og reikna með 10 tíma setu í flugvélum enn þetta verður bara gaman. Ég verða á hóteli sem að er niðri í bæ í seattle og keyri þaðan í skólann.  Þetta er allt að sjálfsögðu borgað af vinnunni þar sem að þetta er dýr pakki.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristberg Snjólfsson

Ertu að fara alla leið i hundana humm

Kristberg Snjólfsson, 22.10.2007 kl. 08:18

2 Smámynd: Margrét M

það eru alltaf fleiri og fleiri að fara í hundana ...  

Margrét M, 22.10.2007 kl. 09:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Ég

Viðar Þór Marísson
Viðar Þór Marísson

 

 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband